Handbolti

Jólagjafir, tölvur og nóg af nærbuxum í töskunni
Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu eru margir orðnir býsna vanir því að verja janúar á hóteli – á stórmóti. Helsta vopn þeirra til að drepa tímann með á vonandi löngu móti í Þýskalandi eru Ipadar og aðrar tölvur.

EM í dag: Rosalegt æðiskast og óþolandi tæpur sigur
Fjörið heldur áfram á EM í handbolta og í nýjasta þætti EM í dag voru Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson enn að jafna sig eftir spennutryllinn í Ólympíuhöllinni í München, þegar Ísland vann Svartfjallaland.

„Þetta er sami grauturinn í annarri skál“
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Leipzig í Þýskalandi, segist ekki sjá miklar breytingar á leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta frá síðustu mótum.

Ísland komið áfram áður en leikur hefst?
Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni fyrir lokadaginn í C-riðli EM karla í handbolta á morgun. Örlögin eru í höndum Íslands sem með sigri á Ungverjum stæði uppi með fullkomna draumaniðurstöðu en ef allt fer á versta veg er liðið fallið úr keppni.

„Hefðum svo auðveldlega getað verið með núll stig eftir þessa tvo leiki“
Ísland vann Svartfjallaland 31-30 á EM í handbolta í Munchen í gær. Tæpara mátti það ekki standa og var leikurinn gerður upp í hlaðvarpinu Besta sætið í gærkvöldi.

Myndaveisla frá dramatískum sigri Íslands
Ísland vann hádramatískan eins marks sigur á Svartfjallalandi á EM karla í handknattleik í gær, sunnudag. Hér að neðan má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók á leiknum.

Skýrsla Sindra: Hvenær kviknar á liðinu hans Snorra?
Síðbúin jólagjöf frá Svartfellingum kom í veg fyrir algjöra martraðarniðurstöðu fyrir íslenska landsliðið á EM í handbolta í kvöld. Strákarnir okkar höfnuðu öllum tækifærum til að hrista mótherjana af sér en lönduðu samt að lokum eins tæpum sigri og hugsast gæti, 31-30.

Ungverjaland marði Serbíu
Dramatíkin í C-riðli EM karla í handbolta heldur áfram en Ungverjaland skreið á topp riðilsins með eins marks sigri á Serbíu. Fyrr í dag hafði Ísland unnið hádramatískan sigur á Svartfjallalandi.

Samfélagsmiðlar: Vitlaus skipting bjargaði Íslandi
Ísland ætlar ekki að spila neina rólega leiki á Evrópmóti karla í handbolta sem nú fer fram í Þýskalandi. Annan leikinn í röð var boðið upp á háspennuleik en að þessu sinni hafði Ísland betur, með minnsta mun. Lokatölur í Munchen 31-30 Íslandi í vil.

Sviss náði í óvænt stig gegn Frakklandi
Sviss náði í óvænt stig gegn Frakklandi á Evrópumóti karla í handbolta í dag. Þá vann Spánn stórsigur á Rúmeníu.

Ómar Ingi: Mér fannst við spila betur í dag
Ómar Ingi Magnússon átti mun betri leik en á móti Serbum í fyrsta leiknum og var bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í íslenska liðinu.

„Andlega sterkt að vinna leikinn“
„Tvö stig í pokann en aftur, eins og í fyrsta leik, var þetta ekki alveg nægilega gott. Erfitt að setja puttann á hvað það er svona strax eftir leik,“ sagði hornamaðurinn Bjarki Már Elísson eftir sigur Íslands á Svartfjallalandi á EM í handbolta sem fram fer í Þýskalandi.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Svartfjallalandi: Ómar Ingi og Björgvin til bjargar en hornaþrot
Annan leikinn í röð slapp íslenska karlalandsliðið í handbolta með skrekkinn þegar það vann Svartfjallaland, 30-31, í C-riðli Evrópumótsins í dag.

„Við getum ekki haldið áfram að klúðra svona“
Elliði Snær Viðarsson var ánægður með sigurinn en vill sjá betri frammistöðu og betri færanýtingu.

„Tökum þessum tveimur stigum fegins hendi“
„Var í max púls, fullt af mjólkursýru og hefði komið illa út úr þrekprófi,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir hádramatískan sigur Íslands á Svartfjallalandi á EM karla í handbolta sem fram fer í Þýskalandi.

Tölfræðin á móti Svartfjallandi: Þrettán færi forgörðum úr horni og af línu
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann eins marks sigur á Svartfjallaland, 31-30, í öðrum leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi.

„Kom ekkert annað til greina en sigur“
„Fannst við sundurspila þá bróðurpartinn af leiknum. Klikkuðum hins vegar á of mikið af dauðafærum,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði Íslands, eftir hádramatískan eins marks sigur á Svartfjallalandi á EM í handbolta.

Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 31-30 | Björgvin Páll tryggði dramatískan sigur
Ísland ætlar ekki að spila neina rólega leiki á Evrópmóti karla í handbolta sem nú fer fram í Þýskalandi. Annan leikinn í röð var boðið upp á háspennuleik en að þessu sinni hafði Ísland betur, með minnsta mun. Lokatölur í Munchen 31-30 Íslandi í vil.

Svona var stuðið hjá íslensku stuðningsmönnunum
Stuðningsmenn íslenska landsliðsins eru fjölmennir í Munchen nú þegar styttist í leik Íslands og Svartfjallalands. Vísir var í beinni útsendingu frá Höllinni.

Myndaveisla: Húrrandi fjör á Hofbrauhaus
Það styttist í stórleik Íslands og Svartfjallalands á EM en stuðningsmenn Íslands í München eru löngu byrjaðir að hita upp á Hofbrauhaus.

Haukur og Donni ekki með í dag
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handbolta hefur ákveðið að hafa þá Hauk Þrastarson og Kristján Örn Kristjánsson, eða Donna, utan hóps í leiknum við Svartfjallaland sem hefst klukkan 17.

Segir Færeyinga hafa fengið innblástur frá íslenska liðinu
Óli Mittún leikmaður færeyska landsliðsins í handknattleik segir að jafntefli Íslands gegn Serbíu hafi gefið Færeyingum innblástur í leik liðsins gegn Noregi í gær. Færeyingar jöfnuðu metin á ótrúlegan hátt undir lokin leiksins.

„Einar er ógeðslega góður í þessu“
„Það er mikið af skyttum þarna og þeir eru stórir og þungir,“ segir Sigvaldi Björn Guðjónsson, hornamaður íslenska landsliðsins, um Svartfellingana sem Ísland þarf að eiga við á EM í handbolta í dag.

„Við erum með frábæra sóknarmenn“
Elvar Örn Jónsson er tilbúinn í frekari átök gegn þungum og öflugum leikmönnum Svartfjallalands á EM í handbolta í dag, eftir að hafa leitt öfluga vörn Íslands í jafnteflinu við Serba á föstudaginn.

EM í dag: Sindri samdi lag fyrir Ómar Inga
Strákarnir okkar æfðu í krúttlegum leikfimissal í úthverfi München í gær. Þar voru líka stjórnendur EM í dag, þeir Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson.

„Skynja hug og hungur í mönnum að bæta fyrir það“
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, ætlar ekki að gera neinar stórvægilegar breytingar á sóknarleik Íslands fyrir leikinn við Svartfjallaland á EM í dag. Skammur tími frá jafnteflinu við Serbíu á föstudag bjóði heldur ekki upp á það.

Snorri geri ekkert öðruvísi en Guðmundur
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefði getað gert hluti öðruvísi í leik Íslands og Serbíu í fyrrakvöld. Sérfræðingur Besta sætisins sér lítinn mun á áherslum Snorra og forvera hans í starfi, að minnsta kosti að dæma af fyrsta leik.

„Hitti hann ágætlega í andlitið“
Elliði Snær Viðarsson segist hafa verðskuldað rauða spjaldið sem hann fékk gegn Serbíu í fyrsta leik á EM í handbolta. Hann er úthvíldur og klár í átökin gegn Svartfjallalandi í dag.

„Þarf að vera fljótur að gleyma líka“
„Ég var alls ekki góður og ég á helling inni. Það verður bara að gera betur. Bæði ég og liðið,“ segir Ómar Ingi Magnússon, máttarstólpi í íslenska landsliðinu í handbolta, hreinskilinn eftir fyrsta leik á EM í Þýskalandi.

Danir og Svíar kjöldrógu andstæðinga sína
Danir og Svíar unnu yfirburðasigra í leikjum sínum á EM í kvöld og eru bæði lið því með fullt hús stiga í sínum riðlum, tveir sigrar í tveimur leikjum.