
Körfubolti

Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik
Gianmarco Pozzecco, landsliðsþjálfari Ítalíu, var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleikinn gegn Íslandi í Laugardalshöll. Hann dró sig til hlés, áhyggjulaus líklega enda höfðu hans menn mikla yfirburði og 25-49 forystu eftir fyrri hálfleik. Ítalía fór svo með 71-95 sigur þrátt fyrir að spila án sinna sterkustu leikmanna, og seinni hálfleikinn án aðalþjálfara.

Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar
JJ Redick, þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, fer á dimman stað þegar lið hans tapar leikjum. Nánar tiltekið niður í kjallarann heima hjá sér að horfa á leikinn á nýjan leik.

„Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“
„Við misstum stjórn á leiknum í öðrum leikhlutanum, þeir taka afgerandi forystu og gegn liði eins og Ítalíu er erfitt að snúa spilinu við. Við gerðum vel og héldum áfram að berjast, það kom eitt augnablik þar sem ég hélt að við værum að snúa leiknum okkur í vil, en það fór ekki svo,“ sagði Tryggvi Hlinason, miðherji íslenska landsliðsins, eftir 71-95 tap gegn Ítalíu í Laugardalshöll.

„Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“
„Ég var ánægður með að hafa barist til baka í seinni hálfleik, sá kafli var mjög góður en við höfðum grafið okkur of djúpa holu á þeim tímapunkti,“ sagði landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen eftir 71-95 tap Íslands gegn Ítalíu í Laugardalshöll.

Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir
Ísland mátti þola tap gegn Ítalíu í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta. Lokatölur í Laugardalshöll 71-95.

„Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“
Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds kvenna segja að það skorti leikgleði hjá Val og hugarfar liðsins sé ekki nógu gott.

Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hlakkar til leiks Íslands við Ítalíu í undankeppni EM 2025 í Laugardalshöll í kvöld. Hann segir andann góðan í íslenska hópnum.

„Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“
Tryggvi Snær Hlinason er klár í slaginn fyrir leik Íslands við Ítalíu í undankeppni EuroBasket á næsta ári. Liðin mætast í Laugardalshöll í kvöld.

Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi
Heimildarþáttaröðin Kaninn verður frumsýnd á Stöð 2 og Stöð 2 Sport á sunnudagskvöldið. Í fyrsta þætti verður fjallað um ævintýraleg upphafsár um miðbik áttunda áratugarins þegar fyrstu Kanarnir hófu að koma hingað til lands til að leika sem atvinnumenn.

„Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“
Bretar unnu afar óvæntan endurkomusigur gegn hinni miklu körfuboltaþjóð Grikkjum í gærkvöld, 73-72, í undankeppni EM karla í körfubolta. Þjálfari Grikklands spyr sig hvernig liðið eigi að komast á EM ef það geti ekki notað landsliðsmennina sína.

Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“
Í efstu tveimur deildum karla í körfubolta er mikill fjöldi erlendra leikmanna. Eitt lið sker sig þó úr en það er KV, venslalið KR í Vesturbænum, sem eingöngu er skipað Íslendingum og hefur staðið sig afar vel á sinni fyrstu leiktíð í 1. deildinni.

„Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“
Jón Axel Guðmundsson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu eru í eldlínunni á næstu dögum þar sem þeir mæta Ítölum tvisvar sinnum á fjórum dögum í undankeppni EM.

„Sá sem lak þessu er skíthæll“
Joel Embiid vandar þeim sem lak upplýsingum frá liðsfundi Philadelphia 76ers á mánudaginn ekki kveðjurnar. Á fundinum skammaði Tyrese Maxey, samherji Embiids, stórstjörnuna fyrir að mæta alltaf of seint.

Gafst upp á að læra frönskuna
Styrmir Snær Þrastarson nýtur lífsins í atvinnumennskunni í Belgíu. Hann undirbýr sig ásamt landsliði Íslands fyrir komandi leiki við Ítalíu í undankeppni EM 2025.

Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“
„Þetta reynir á hausinn“ segir Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, sem hefur glímt við töluvert rót á nýjum stað í Grikklandi. Hann segir fínt að komast aðeins heim í kuldann á klakanum.

LeBron James hættur á samfélagsmiðlum
Körfuboltagoðsögnin LeBron James tilkynnti óvænt í gærkvöld að hann væri farinn í hlé frá samfélagsmiðlum, og vísaði í gagnrýni á „neikvæða“ umræðu í bandarískum fjölmiðlum.

Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja
Russell Westbrook átti góðan leik með Denver Nuggets þegar liðið vann Memphis Grizzlies í NBA deildinni í körfubolta í fyrrinótt en hann fékk líka afar sérstaka tæknivillu í leiknum.

Gerði betur en Curry, jafnaði NBA met og hermdi eftir Jordan
Það er ný stjarna að fæðast í Los Angeles. Sá heitir Dalton Knecht og spilar með liði LA Lakers í NBA deildinni í körfubolta.

„Þurftu að þora að vera til“
Það var létt yfir Friðriki Inga Rúnarssyni, þjálfara Keflavíkur, eftir dramatískan 90-89 sigur hans kvenna gegn nýliðum Tindastóls í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld. Friðrik segir að liðið hafi gert sér erfitt fyrir og segist vissulega vera glaður með sigurinn en spilamennskan hafi ekki verið fullkomin í kvöld.

Þjálfaraskipti hjá ÍR og Fjölni í körfunni
Baldur Már Stefánsson er nýr þjálfari Fjölnis í 1. deild karla í körfubolta og mun stýra liðinu út tímabilið.

Stjörnukonur flottar á Hlíðarenda og Þórskonur fögnuðu áfram fyrir norðan
Stjarnan og Þór Akureyri fögnuðu sigri í leikjum sínum í sjöundu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld.

Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 90-89 | Spennutryllir
Keflavík vann nauman endurkomusigur í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld en liðið lenti í miklum vandræðum með nýliða Tindastóls.

Áhrifavaldur til liðs við nýliðana í Vesturbænum
Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur fengið félagaskipti yfir í nýliða KV í fyrstu deild karla í körfubolta

Celtics stöðvaði fimmtán leikja sigurgöngu Cavs
Eftir að hafa unnið fyrstu fimmtán leiki sína tapaði Cleveland Cavaliers sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið sótti Boston Celtics heim í nótt. Meistararnir unnu 120-117 sigur.

Uppgjörið: Grindavík - Haukar 68-85 | Gestirnir unnu vængbrotið lið Grindavíkur
Haukar unnu fjórtán stiga útisigur gegn Grindavík 68-85. Það vantaði lykilmenn í lið Grindavíkur sem gerði gestunum töluvert auðveldara fyrir. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Fjórði sigur Njarðvíkurstelpna í röð
Njarðvíkurkonur eru komnar á mikla siglingu í Bónus deild kvenna í körfubolta en þær unnu fjórða sigur sinn í röð í kvöld.

Sækja allar ruslatunnur úr Grindavík
Til stendur að fjarlægja allar ruslatunnur úr Grindavík um helgina og á að koma þeim fyrir í Reykjanesbæ.

Höttur á Egilsstöðum eða „hawk tuah“?
Courvoisier McCauley, sem nú er hættur sem leikmaður Hattar, kenndi sérfræðingum Bónus Körfuboltakvölds að bera fram nafnið hans. Þeir höfðu þó meira gaman af því hvernig McCauley bar fram nafn Hattar.

Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR
ÍR-ingar eru búnir að finna sér nýjan þjálfara og sá kannast vel við sig í herbúðum ÍR.

Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið
Bónus Körfuboltakvöld var á dagskrá á föstudaginn þar sem þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson var með valinkunna sérfræðinga með sér til að ræða allt það helsta í Bónus-deildinni.