Lífið

Katrín sögð hafa sést úti meðal almennings
Katrín Middleton er sögð hafa sést meðal almennings í fyrsta sinn. Þar á hún að hafa verið „hamingjusöm, slök og heilbrigð,“ að því er fullyrt er í umfjöllun breska götublaðsins The Sun.

Grímur leitar að bræðrum sínum
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, reynir þessa dagana að komast í samband við tvo karlmenn sem hann telur vera bræður sína. Hann biður alla sem hafa tengingar í Wales að deila FB-færslu sinni í þeirri von að hún nái til skyldmenna sinna.

Stjörnulífið: Eyddi kvöldinu með Paris Hilton í LA
Árshátíðir erlendis, Íslendingar í útlöndum og undirskriftasöfnun fyrir komandi forsetakosningar voru áberandi í liðinni viku hjá stjörnum landsins.

Zara tók sjálfur með gosinu
Sænska ofurstjarnan Zara Larsson nýtti sér stund milli stríða vel á laugardagskvöldinu þegar það byrjaði að gjósa. Hún tók nokkrar sjálfur af sér með gosinu af toppi tónlistarhússins Hörpu þar sem hún var með tónleika það kvöldið.

Sigur Rós endar túrinn með Elju í Hörpu
Sigur Rós er á leið í tónleikaferðalag með strengjasveit um Norðurlöndin. Ferðalagið mun enda í Eldborg í Hörpu í desember næstkomandi. Sveitin mun þar koma fram ásamt kammersveitinni Elju.

Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eiga von á stúlku í ágúst. Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Kann ekki að gefast upp
Mollý Jökulsdóttir var tvítug þegar hún flutti ein út til Danmerkur, með tvær ferðatöskur og óljóst framtíðarplan. Í dag er hún í stjórnunarstöðu hjá einni stærstu verslunarkeðju í Evrópu og er á sama tíma á uppleið innan tónlistargeirans, en á dögunum undirritaði hún samning við Quattro Music sem er undirfyrirtæki Warner Brothers í Kaupmannahöfn.

Geggjuð í karókí og býr yfir miklum sannfæringarkrafti
Þórhildur Þorkelsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri Brú Strategy ásamt því að halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Eftirmál, með vinkonu sinni Nadine Guðrúnu Yaghi. Þórhildur er landsmönnum að góðu kunn en hún starfaði sem fréttakona um árabil.

Heiðdís Rós vill komast á Forbes listann
Athafnakonan, förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir er búsett í Miami í Bandaríkjunum. Hún horfir björtum augum á framtíðina ætlar sér að verða fyrsta íslenska konan sem kemst á lista Forbes.

Fagnaðarfundir í 80 ára afmæli Loftleiða
Margt var um manninn á opnunarhátíð 80 ára afmælissýningu Loftleiða í bíósal Hótel Natura 8. mars síðastliðinn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og ferðamálaráðherra opnaði hátíðina og flutti fræðandi erindi.

Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á?
Sunnudagar og sjónvarp eru prýðileg blanda fyrir þau sem vilja nýta hvíldardaginn vel. Lífið á Vísi heldur áfram að rannsaka sjónvarpsefni þar sem gríðarlegt magn er í boði og oft getur valið því orðið yfirþyrmandi. Í dag deila nokkrar öflugar listakonur landsins því hvað þær eru að horfa á þessa dagana.

Salvador á Djúpavogi reyndist heita Buszek og búa í Sandgerði
Heimilislaus köttur sem fannst á Djúpavogi og gefið var nafnið Salvador reyndist í raun heita Buszek og eiga heimili í Sandgerði. Þaðan hvarf hann fyrir þremur árum síðan. Eigandinn segist ekki hafa trúað sínum eigin augum þegar hún rak augun í mynd af Buszek á Facebook síðu Villikatta á Austurlandi.

Dó næstum því við tökur á Íslandi
Tónlistarkonan Kacey Musgraves segist hafa næstum því látið lífið þegar hún var stödd hér á landi við að taka myndband fyrir titillag nýrrar plötu sinnar. Hún segir Ísland hafa verið eins og önnur pláneta.

Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli
Hjónin Guðný Matthíasdóttir og Róbert Halbergsson hafa undanfarið eitt og hálft ár búið í húsbíl ásamt börnunum sínum tveimur og heimsótt alls 26 lönd í Evrópu. Fjölskyldan deilir reglulega myndum og myndskeiðum á Instagram þar sem þau sýna frá daglegu lífi sínu á flakki á „Eurovagninum“ svokallaða, en lífstíll þeirra er mörgum framandi.

Krakkatían: Eurovision, rapparar og fótboltamenn
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni sem hefst á Vísi í dag. Krakkatían kemur í staðinn fyrir Krakkakvissið sem hefur verið á Vísi undanfarið.

„Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“
„Ég var vissulega ekki opin fyrir ástinni þegar að við Adam kynntust,“ segir dansarinn, raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir. Hún var nýbúin að ganga í gegnum mjög erfiða lífsreynslu þegar að sönn ást bankaði upp á og þrátt fyrir að hafa ætlað sér að vera ein um tíma var óumflýjanlegt að sleppa tökunum og fylgja hjartanu. Ástrós er viðmælandi í Einkalífinu.

Vampíra vann Músíktilraunir
Hljómsveitin Vampíra stóð uppi sem sigurvegari í Músíktilraunum sem lauk í kvöld að loknum fjórum undankvöldum í Hörpu. Eló hafnaði í öðru sæti og Chögma í því þriðja.

Mikilvægt og valdeflandi að fylgjast með tíðahringnum
Doktor í svefnrannsóknum segir svefnleysi fjörutíu prósent algengara hjá konum en körlum. Það sé mikilvægt og valdeflandi að fylgjast með tíðahringnum og þeim hormónasveiflum sem konur fari í gegnum í hverjum mánuði. Hún ætlar sér langt með nýútkomið smáforrit sem einblínir á svenheilsu kvenna.

Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari
Innanhússarkitektinn Stella Birgisdóttir er mikill fagurkeri bæði þegar að það kemur að heimilinu og að klæðaburði. Hún lærði hönnun á Ítalíu og sækir innblástur þangað en Stella er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Ætlar aldrei að gefast upp
Líf Bjarnheiðar Hannesdóttur tók kollsteypu í desember árið 2012 þegar hún fékk skyndilegt hjartastopp sem varði í tuttugu mínútur. Henni var vart hugað líf en barðist ötullega og hafði loks betur. Hjartastoppið olli hins vegar gífurlegum heilaskaða og Bjarnheiður, eða Heiða eins og hún er alltaf kölluð, fór frá því að vera aktíf og fullfrísk þriggja barna móðir og fasteignasali yfir í að vera algjörlega ósjálfsbjarga.

Fréttatía vikunnar: Húsbruni, skiltastærð og félagaskipti
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Ábendingum um aðstoð fyrir Blæsa rigndi yfir fjölskylduna
Ábendingum um aðstoð fyrir nýjasta fjölskyldumeðliminn í fjölskyldu Silju Brá Guðlaugsdóttur, hinum ellefu vikna gamla hvolpi Blæsa, rigndi yfir fjölskylduna eftir að Silja birti mynd af hvolpinum inni á hópi hundaáhugamanna á samfélagsmiðlinum Facebook. Blæsi er heyrnarlaus og sjóndapur vegna erfðagalla.

Bíða eftir tölvupósti frá Heimsmetabók Guinness
Eigandi brasilíska kattarins Xartrux reynir nú að fá nafn kattarins ritað í sögubækurnar en hann er einn og hálfur metri að lengd og rúmlega tíu kíló. Xartrux, eða eigandi hans öllu að heldur, leitast eftir heimsfrægð og vill að upplýsingar um holdafar kattarins rati í heimsmeistarbók Guinness þar sem hann verði skráður stærsti köttur heims.

Myndaveisla: Spessi frumsýndi Afsakið meðanað égæli
Íslenska heimildamyndin Afsakið meðanað ég æli var frumsýnd í Bíó Paradís að viðstöddum kvikmyndagerðarmönnum og leikstjóra miðvikudagskvöldið 13. mars. Þar létu helstu kanónur úr menningarlífinu sig ekki vanta.

Bríet umkringd stórstjörnum í Japan
Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar var umkringd heimsfrægum stórstjörnum á veitingastað á The Tokyo Edition Ginze hótelinu í Japan í gærkvöldi. Bríet birti myndir af þessu glæsilega kvöldi á samfélagsmiðlinum Instagram.

Rétta úr kynjahlutfallinu á Álftanesi
Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson og unnusta hans Sara Dögg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur eiga von á sínu þriðja barni. Parið tilkynnti í einlægri færslu á Instgram að von væri á dreng.

Binni Glee trúir ekki á risaeðlur
Raunveruleikaþættirnir Æði héldu áfram göngu sinni á Stöð 2 í gær en í þætti gærkvöldsins skellti gengið sér í hádegismat saman.

Tignarleg arkitektaíbúð með vínherbergi í kjallara
Við Sturegatan á Östermalm svæðinu í Stokkhólmi má finna tignarlega 170 fermetra íbúð. Eignin býr yfir miklum sjarma og sögu sem ætti að falla vel í kramið hjá arkitektúrs- og hönnunarunnendum.

Fleiri vildu lag Heru en Bashar til Malmö
Fleiri Íslendingar er óánægðir með framlag Íslands í Eurovision 2024, lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar, en ánægðir, eða rúm fjörutíu prósent. Þó vildu fleiri á sama tíma að lagið yrði framlag Íslands frekar en lagið Wild West með Bashar Murad sem lenti í öðru sæti. Þá vilja flestir að Ísland sitji hjá í Eurovision í ár.

Treysta sér ekki að reka verslunina í miðbænum: „Við reyndum“
Eigandi verslunar Guðsteins Eyjólfssonar hefur lokað dyrunum á Laugavegi. Eigandinn kennir um slæmum aðstæðum, þeim að Laugavegurinn sé lokaður fyrir bílaumferð að stórum hluta.