Skoðun

24. janúar og risastórt vistspor Íslands
24. janúar er merkilegur. Þann dag fer Ísland á ,,yfirdrátt” gagnvart vistkerfum Móður jarðar. Samtök fræðimanna sem kenna sig við www.footprintnetwork.org taka saman ítarlegt yfirlit yfir þá skuld sem mannkyn stendur í við Móður jörð. Á síðasta ári markaði fyrsti ágúst svokallaðan Jarðardag, þegar mannkyn í heild fór á yfirdrátt og eyddi auðmagni náttúrunnar (e. biocapacity) umfram það sem jörðin getur gefið af sér. Til að standa undir öllum umsvifum mannkyns á ári þarf 1.7 jarðir.

Hvenær er lögbrot lögbrot og hvenær er lögbrot ekki lögbrot!!
Lögbrot eða ekki lögbrot. Foreldrar leikskólabarna eru mjög leiðir og reiðir yfir því að Kennarasambandið sé að brjóta á réttindum barna þeirra og ætla því í mál við Kennarasambandið vegna verkfalla sem hafa haft áhrif á líf og framavonir leikskólabarnanna. Það er gott og blessað að fara í mál þegar á manni er brotið. Ég vil hins vegar benda þessum foreldrum sem bera hag barna sinna fyrir brjósti að annað lögbrot hefur fengið að viðgangast ansi lengi en það er ráðning starfsfólks í leikskóla í stað kennara.

E. coli eitrun meðal barna og aðrir skaðvaldar í mat
Ég horfði á Kveik á RÚV, 21. janúar, um mjög alvarlega hópsýkingu barna á leikskóla. Það er ekki annað hægt en að finna til með börnunum sem urðu fyrir sýkingunni og foreldrum þeirra. Rætt var við aðila sem tengjast málinu eins og forstöðumann Félagsstofnunar HÍ og fulltrúa Heilbrigðiseftirlits og svara leitað hvernig svona nokkuð getur gerst.

Sorg barna - leit að merkingu
Missir getur ögrað hugmyndum okkar um lífið og tilveruna; syrgjandi getur farið að efast um að veröldin sé góður staður, að veröldin sé skiljanleg og að maður sjálfur sé mikils virði. Þegar maður fær ekki að lifa lífinu sem maður ætlaði að lifa er ekki skrítið að hugmyndaheimurinn verði dekkri en hann var.

Öðruvísi, fordæmd, útskúfuð en einnig ósigrandi
Við sem erum trans, kynsegin, hinsegin og á einhvern hátt fyrir utan box þeirra sem nú ráða nánast öllu í BNA, erum hér enn, höfum alltaf verið hér og munum alltaf halda áfram að fæðast og vera til á meðan mannkynið verður til. Því við fæðumst trans, það er byggt í okkar kjarna, okkar vitund, okkar alheims neista frá fyrsta augnabliki.

Sparnaður án aðgreiningar
Kennarahlutverkið hefur breyst í gegnum árin og þá sérstaklega síðustu ár. Æ fleiri þættir falla nú undir verkahring kennarans, utan þess að beinlínis mennta nemendur.

Til varnar leiðindum
Í þeim skilningi er allt í lagi að vera leiðinlegur. Við megum alveg skynja það hvernig tíminn okkar líður því hann er vettvangur ævistarfs okkar og verka frá því okkur skolar í heiminn með legvatninu og til þess er ljósið slokknar í lífi okkar.

Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut
Við samþykktum í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í gær að setja forgangsakrein fyrir strætó á 500 metra kafla vestanmegin á Kringlumýrarbraut í suðurátt milli Miklubrautar og Háaleitisbrautar í samvinnu við Vegagerðina. Þetta mun stytta ferðatíma strætófarþega á háannatíma verulega eða um allt að 4-5 mínútur á sumum leiðum. Sérakreinar koma almennt í veg fyrir að farþegar almenningssamgangna sitji fastir í umferðarsúpu og gera leiðirnar og þjónustuna áreiðanlegri.

Vinnum saman, stígum fram og göngum í takt
Rannsóknir hafa sýnt að samstarf heimilis og skóla sé gríðarlega mikilvægt og stuðlar að betri líðan nemenda og starfsfólks skóla. Einnig bætir samstarf námsárangur nemenda og stuðlar að betri skóla og bekkjarbrag. Velferð og farsæld barna er því sameiginlegt verkefni heimila, skóla og þess nærumhverfis sem barnið er í.

Heimatilbúið „tjón“ Landsvirkjunar
Hvammsvirkjun hefur löngum verið umdeild, ekki síst vegna þess að þar er stærsta laxastofn landsins að finna sem og Viðey við Þjórsá sem er friðuð.

Þingmaðurinn og spillingin á Veðurstofunni
Nýbakaður alþingismaður, skáldið Sigmundur Ernir Rúnarsson, fór mikinn á dögunum í skrifum sínum á vefsíðu Eyjunnar/DV um fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Holur í malbiki og tannlækningar
Það er margt líkt með gatnakerfinu og tönnunum okkar. Ótrúlegt en satt.

Fjölbreytileiki í íslensku skólakerfi: Erum við á réttri leið?
Á undanförnum árum hefur íslenska skólakerfið lagt mikla áherslu á fjölbreytileika, einstaklingsmiðað nám og valdeflingu nemenda.

Geðheilsuskatturinn
Um árabil hefur VR stéttarfélag vakið athygli á því misræmi sem er á skattalegri meðferð styrkja stéttarfélaga eftir því til hvers styrkurinn er veittur. Sérstaklega er hrópandi misræmi á milli styrkja sem félagsfólk nýtur eftir því hvort það vill rækta sína andlegu eða líkamlegu heilsu.

Hvað gerðist þegar konan talaði?
Ræða biskupsins Mariann Edgar Budde sem haldin var í Washington eftir embættistöku Trump forseta hefur farið sem eldur um sinu? Þarna stóð hún þessi miðaldra kona svo hógvær í yfirbragði en talaði með þeim hætti að undrun, ráðaleysi og gremja skein af ásjónu Trump og hans glæsta föruneytis.

Hverjir munu búa á Blikastaðalandi?
Lögð hefur verið fram til kynningar deiliskipulagstillaga á vinnslustigi um uppbyggingu á Blikastaðalandi í Mosfellsbæ. Tillagan er líkt og kemur fram í yfirheiti hennar á vinnslustigi en þannig er gengið lengra en lög gera ráð fyrir í lýðræðslegu skipulagsferli.

Vatnamálalögin og Hvammsvirkjun: Almannaheill ?
Því er nú haldið fram að ákvæði í 14 ára gömlum lögum um stjórn vatnamála (36/2011) komi í veg fyrir allar nýjar virkjanir, brýr, hafnir, flóðgarða og svo framvegis. Það er vegna þess að umhverfisnefndin á þinginu breytti tilteknu ákvæði í lagafrumvarpinu ‒ og nú sé allt upp í loft ‒ og alveg sérstaklega Hvammsvirkjun, sem einmitt átti að bjarga heiminum.

Er húmanismi komin úr tísku?
Húmanismi í anda Upplýsingarinnar virðist nú vera á undanhaldi í hinum vestræna heimi, nánast hvert sem lítið er. Skynsemi, siðfræði, samúð og réttlæti eru hugtök sem litin eru hornauga og jafnvel sem “aumingjaskapur” og stimpluð sem “woke” og endurspeglar þetta ákveðinn menningarlegan klofning sem hefur verið að dýpka í samfélaginu.

Eru landeigendur við Þjórsá huldufólk?
Ég hélt að ég gæti ekki misst álitið enn meira á „kerfinu“ á þessu landi. Þið vitið, á sama hátt og maður missir trúna á fullorðna fólkinu þegar maður hættir að vera barn og áttar sig á að enginn er fullkominn og veit nákvæmlega hvernig á að gera hlutina. Allir eru bara að gera sitt besta.

Við þurfum þjóðarstefnu
Öryggi er ein af grunnþörfum fólks. Einn mikilvægur þáttur í öryggiskennd fólks er skjól gegn veðri og vindum. Okkur sem samfélagi ber að tryggja að þeir sem leita aðstoðar og verndar geti fengið húsaskjól.

Áskorun til Handknattleikssambands Íslands: Ekki keppa við lið Ísraels um sæti í Evrópumóti kvenna í handbolta í apríl 2025
Í lögum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir: „Með því að blanda saman íþróttum, menningu og menntun er leitast við að skapa lífshætti sem byggjast á áreynslugleði, menntunarlegu gildi góðs fordæmis, samfélagslegri ábyrgð og virðingu fyrir alþjóðlega viðurkenndum mannréttindum.“

Fögnum umræðunni um skólamál
Það var löngu kominn tími til að einhver tæki af skarið og opnaði á umræðuna varðandi stöðuna innan veggja menntastofnana í landinu. Takk Sigrún Ólöf skólastjóri Hörðuvallaskóla fyrir að vera sá fagaðili sem það gerði.

Ný ríkisstjórn, traust og athygli
Ný ríkisstjórn er tekin við og byrjar vel með stuttum en skýrum stjórnarsáttmála, fækkun ráðuneyta um eitt, áætlunum um sameiningar ríkisstofnana og skynsamlegri ákvörðun varðandi Evrópusambandið, þar sem þjóðin fær loksins að segja af eða á.

Verðmætasköpun með hugvitið að vopni
Íslenskt hagkerfi stendur á áhugaverðum krossgötum um þessar mundir. Árið 2024 var sögulegt þar sem útflutningur hugverkaiðnaðar fór yfir 300 milljarða og festi greinin sig þannig rækilega í sessi sem fjórða stoðin í útflutningsverðmætum landsins. En við erum bara rétt að byrja.

Fæðuöryggi þjóðar, sláum í klárinn, togum í tauminn
Íslenska ríkið setti af stað metnaðarfulla áætlun um eflingu íslenskrar kornræktar í upphafi árs 2024 eftir greiningarvinnu sem hófst árið 2022. Nú skyldi slegið í klárinn. Umræðan spratt upp eftir Úkraínustríð og Covid faraldur.

Slökkvistarfið
Hugsum okkur slökkviliðsmann í Los Angeles. Hann berst við elda sem að öllum líkindum tengjast þeim loftslagsbreytingum sem mannkynið hefur verið að kynda undir síðustu aldirnar með sífellt aukinni losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið. Hann er í framlínu baráttunnar við tjón á fólki og eigum þess.

Hvatning til heilbrigðisráðherra
Krabbameinsfélagið hvetur heilbrigðisráðherra til að lækka gjald, sem konur í eftirliti vegna aukinnar áhættu á brjóstakrabbameinum þurfa að greiða fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum, til jafns við gjald fyrir brjóstaskimun.

Bönnum íþróttamót barna fyrir kl. 10 um helgar
Börnin mín æfa bæði íþróttir af kappi og ég er þakklát fyrir frábært íþróttastarf sem þau hafa aðgang að. Linnulaus íþróttamót draga hins vegar úr ánægju þess að eiga börn í íþróttum. Um þessar mundir er nefnilega gerð samfélagsleg krafa um mætingu a.m.k. tveggja ættliða og helst allra systkina til að hvetja börnin áfram allt frá því þau eru nánast ómálga en geta þó þóst sparka í bolta.

Samtrygging verkalýðshreyfingar og samtaka atvinnulífsins í eftirlaunasjóðum launafólks
Er það mat forystufólks í verkalýðshreyfingunni að SA-fólkið eigi rétt á því að skipa til jafns við eigendur eftirlaunasjóðanna (launafólk) í stjórnir eftirlaunasjóðanna og tryggja þannig gagnkvæmt neitunarvald um hvernig eftirlaun okkar eru ávöxtuð/fjárfest ? Launafólk hefur 100% eignarhald á eftirlaunasjóðunum.

Húsnæði er forsenda bata
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt endurskoðaða aðgerðaáætlun í málefnum heimilislausra, sem gildir til ársins 2027. Áætlunin byggir á stefnu borgarinnar í málaflokknum. Síðustu ár hefur orðið gjörbylting í þjónustu við heimilislaust fólk sem nú er veitt á grundvelli skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri valdeflandi þjónustu.