Viðskipti erlent

Rússneskur auðmaður keypti Mercedes bíl Hitlers
Rússneskur auðmaður hefur fest kaup á Mercedes bíl Adolf Hitlers en bíll er af gerðinni Mercedes 770 K og var oft notaður af Hitler við opinberar athafnir á sínum tíma.

McDonalds skiptir um lit, frá rauðu yfir í grænt
McDonalds hamborgarakeðjan í Þýskalandi mun framvegis aðskilja sig frá öðrum slíkum í heiminum með því að breyta grunnlitinu í vörumerki keðjunnar úr rauðu og yfir í gænt.

Skuldir settar í sölu á netinu
Fjármálakreppan hefur haft það í för með sér að svo mikið er að hjá innheimtufyrirtækjum að nú er farið að setja skuldir einstaklinga til sölu á netinu. Eina áhættan sem fólgin er í þessu fyrirkomu lagi er að skuldararnir sjálfir geta keypt skuldir sínar á útsöluverði.

Samið um skuldir West Ham, Straumur leggur til milljarð
CB Holding hefur endursamið um skuldir við lánadrottna enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham og er fjárhagur félagsins nú kominn á traustari grundvöll en hann var. Straumur, meirihlutaeigandi CB Holding, lagði fram 5 milljónir punda, eða rúmlega milljarð kr. Í nýju fé til West Ham.

Konur í stjórnum fá helmingi minna greitt en karlmenn
Konur sem sitja í stjórnum 350 stærstu fyrirtækjanna í Kauphöllinni í London fá greitt einungis helminginn af því sem karlar fá, samkvæmt nýrri rannsókn.

Apple framsæknasta fyrirtæki í Bretlandi
Apple hefur tekið frammúr Google sem áhrifamesta og framsæknasta fyrirtæki í Bretlandi, samkvæmt skoðanakönnun sem var gerð á meðal 1000 álitsgjafa.

Royal Unibrew í slagsmálum við Heineken
Þannig hljómar fyrirsögn í viðskiptablaðinu Börsen þar sem fjallað er um ágreingin sem kominn er upp milli Royal Unibrew næststærstu burggverksmiðju Danmerkur og hollenska ölrisans Heineken. Royal Unibrew og Heineken eru samstarfsaðilar og framleiðir Royal Unibrew m.a. Heineken-öl í Danmörku samkvæmt leyfi frá Heineken.

Franskur stórbanki varar við öðru efnahagshruni
Franski stórbankinn Société Générale varar nú viðskiptavini sína við öðru efnahagshruni á næstu tveimur árum. Bankinn hefur þegar breytt fjárfestingastefnu sinni til að verja fjármuni viðskiptavina sinna.

Leynibónusar til Ikea-toppa og hagnaðurinn til skattaparadísa
Ikea sendir árlega hundruð milljarða kr. af hagnaði sínum inn á reikninga og í félög í skattaparadísum eins og Bresku Jómfrúreyjunum. Samtímis fá forstjórar Ikea leynilega bónusa svo þeir haldi kjafti um þessa fjármagnsflutninga.

Gullúr selt fyrir rúmlega 600 milljónir á uppboði
Óþekktur auðmaður greiddi nýlega metverð fyrir gullúr á uppboði. Það var slegið á rúmlega 5 milljónir svissneskra franka eða rúmlega 600 milljónir kr.

Fréttin um West Ham er bull, ekkert tilboð borist
Frétt breska blaðsins The Sun í morgun um tilboð David Sullivan í enska úrvalsdeildarliðið West Ham er bull og enn hefur ekkert formlegt tilboð borist í félagið að sögn Georg Andersen forstöðumanns samskiptasviðs Straums.

Danska ríkisútvarpið segir upp 40 stjórnendum
Danska ríkisútvarpið (DR) hefur ákveðið að segja upp 40 manns sem gegna stjórnunarstöðum innan stofnunarinnar. Er þetta liður í hagræðingu og endurskipulagningu DR sem staðið hefur um nokkurt skeið.

David Sullivan vill fá helming West Ham gefins
David Sullivan hefur krafist þess að fá helming enska úrvalsdeildarliðsins West Ham gefins hjá Straumi. Á móti muni hann bjarga félaginu.

Karlar ráða lögum og lofum í atvinnulífinu á Norðurlöndum
Aukin áhersla á jafnrétti og þrýstingur frá kvennahreyfingunni hafa ráðið úrslitum um að konum hefur fjölgað í stjórnmálum á Norðurlöndum undanfarin 15 ár. Í atvinnulífinu ráða karlar þó lögum og lofum enn sem fyrr. Þetta kemur fram í viðamiklu norrænu rannsóknaverkefni um kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi.

Glitnir í Noregi fjármagnaði kaup á hlutum í klámfyrirtæki
Glitnir Securities, verðbréfamiðlun Glitnis í Noregi, fjármagnaði kaup viðskiptavina sinna á hlutabréfum í klámfyrirtækinu Private Media House. Mikið tap er af þessum kaupum og situr verðbréfamiðlunin RS Platou Markets uppi með það tap en Platou festi kaup á Glitnir Securities eftir bankahrunið í fyrra.

Álverðið fór í 2.037 dollara á tonnið í morgun
Heimsmarkaðsverð á áli fór í 2.037 dollara á tonnið á markaðinum í London í morgun m.v. þriggja mánaða framvirka samninga og hefur verðið ekki verið hærra í ár. Það hefur tvisvar áður farið yfir 2.000 dollara í ár, í síðasta mánuði og í sumar.

Warren Buffett veðjar á matvöru og olíu
Almennir fjárfestar halda niðri í sér andanum þegar fréttist af því að ofurfjárfestirinn Warren Buffett hreyfi sig á markaðinum. Nú hefur Buffett, eða félag hans Berkshire Hathaway, ákveðið að veðja á matvöru og olíu með kaupum í Nestlé og Exxon.

Stoðir vilja fá mann í stjórn Royal Unibrew
Stoðir vilja fá mann í stjórn Royal Unibrew næststærstu bruggverksmiðju Danmerkur í krafti 16% eignarhlutar síns í fyrirtækinu. Það vill svo til að ein staða stjórnarmanns er ómönnuð í augnablikinu.

Vinatónar taldir vaxa hratt
Fjárfestingasjóðurinn Thule Investments og aðrir fjárfestar hafa aukið hlutafé ísraelska tæknifyrirtækisins Muzicall um níu milljónir dala, jafnvirði 1,1 milljarðs króna.

Ríkið fær þrettán prósent
Stjórnendur bandaríska bílarisans General Motors stefna á að greiða niður neyðarlán sem stjórnvöld vestra veittu fyrirtækinu til að forða því frá gjaldþroti fyrr á árinu. Endurgreiðslan á ekki að hefjast fyrr en eftir sex ár.

Fjórða hvert fyrirtæki í Kaupmannahöfn á leið í gjaldþrot
Fjórða hvert fyrirtæki í Kaupmannahöfn er á leiðinni í gjaldþrot. Hlutfallið er aðeins minna ef Stór-Kaupmannahafnarsvæðið er skoðað eða rúmlega 22%. Fjöldi þeirra fyrirtækja sem er á leiðinni í gjaldþrot í Danmörku hefur slegið nýtt með.

Madoff eyðir útivistinni í félagskap mafíuforingja
Stórsvindlarinn Bernhard Madoff afplánar lífstíðardóm sinn í breiðum hópi glæpamanna en útivistinni innan múranna eyðir hann í félagsskap mafíuforingjans Carmine John Persisco Jr. sem er núverandi höfuð Colombio-fjölskyldunnar þrátt fyrir að sitja bakvið lás og slá.

Fasteignaverð í Danmörku hækkar í fyrsta sinn í þrjú ár
Eftir að hafa lækkað nær stanslaust í þrjú ár fer fasteignaverð í Danmörku loksins hækkandi á ný. Þetta sýna nýjar tölur frá hagstofu Danmerkur.

Danske Bank upplifir írska martröð
Danske Bank hefur neyðst til þess að afskrifa írskar bankaeignir sínar um nokkra milljarða danskra kr., eða um 100 milljarða kr., það sem af er árinu. Danske Bank festi kaup á tveimur írskum bönkum árið 2005 þegar „Keltneski tígurinn" tók stökkið. Fyrir bankana borgaði Danske Bank sem svarar til 10,4 milljarða danskra kr.

Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka
Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og slær nýtt verðmet nær daglega þessa stundina. Í morgun var verðið komið í tæpa 1.130 dollara á únsuna og hefur aldrei verið hærra í sögunni.

Magma tapar tæplega þremur milljónum dollara
Félagið Magma Energy tapaði 2,7 milljónum dollara á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma fyrir ári tapaði fyrirtækið rúmlega áttahundruð þúsund dollurum. Magma Energy á meðal annars hlut í HS orku á Suðurnesjum.

Uppboð á eignum Maddof skilar milljón dollurum
Uppboð á eignum óheiðarlega verðbréfamiðlarans Bernie Maddoff skilaði inn milljón dollurum eða 124 milljónum króna. Maddoff var, eins og kunnugt er, dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir að svíkja út 21 milljarð dollara fyrr á árinu.

Royal Unibrew tekur upp slaginn gegn Carlsberg
Royal Unibrew næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur ætla að taka upp slaginn við stórabróður á markaðinum Carlsberg. Þetta kemur fram í sjónvarpsviðtali á börsen.dk við Henrik Brandt forstjóra Royal Unibrew.

Gjaldþrotakóngur Dana komst í þrot 97 sinnum á 3 árum
Tíu mestu gjaldþrotakóngar/kennitöluflakkarar Danmerkur eru með dauða 271 fyrirtækja/félaga á samviskunni. Einn þeirra hefur 97 sinnum lýst yfir gjaldþroti á síðustu þremur árum.

Evrusvæðið réttir úr kútnum
Vöxtur var á þriðja ársfjórðungi á evrusvæðinu samkvæmt nýjum hagtölum. Hagvöxtur hjá þeim 16 löndum sem nota evru sem gjaldmiðil mældist 0,4 prósent á tímabilinu júlí til september en samdráttur var á sama svæði á tímabilinu Apríl til júní. Hagkerfi Þýskalands og Frakklands hafa nú sýnt vöxt síðastliðna tvo fjórðunga sem þykir staðfesta að tvö stærstu hagkerfi evrusvæðisins séu laus við samdráttinn.