Viðskipti erlent

Álverðið hefur hækkað um 100 dollara í vikunni
Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara í vikunni. Þessa stundina stendur verðið í 1.946 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga sem er helsta viðmiðunarverðið á þessum markaði.

Markaðsvirði Twitter orðið milljarður dollara
Markaðsverðmæti félagslegu netsíðunnar Twitter er nú orðið einn milljarður dollara eða tæplega 124 milljarðar kr. Þetta þykir nokkuð gott í ljósi þess að Twitter er enn í sömu skrifstofum í San Francisco þar félagið hóf starfsemi sína 2006 og starfsfólkið telur ekki nema um 50 manns.

Adidas og Puma binda enda á 60 ára illdeilur
Þýsku íþróttavörurisarnir Adidas og Puma hafa ákveðið að binda endi á 60 ára gamlar illdeilur milli fyrirtækjanna. Verður þetta gert með vinaleik í fótbolta milli starfsmannaliða þeirra.

deCODE fær aðvörun frá Nasdaq
deCODE hefur aftur fengið aðvörun frá Nasdaq kauphöllinni í New York vegna þess að verð á hlutum í félaginu hefur verið undir lögboðnu lágmarki undanfarna 30 daga. Samkvæmt reglum Nasdaq má verð á hlut í félögum sem skráð eru á þessum markaði ekki vera undir einum dollara.

Skilnaður að baki nær fimmtu hverjum íbúðaviðskiptum Dana
Ný könnun leiðir í ljós að rekja má nær fimmtung af öllum íbúðaviðskiptum í Danmörku til skilnaða. Þetta er veruleg aukning frá árinu 2006 þegar samskonar könnun leiddi í ljós að 10% viðskiptanna mátti rekja til skilnaða.

Breska FSA kannar sölu á JJB Sports hlutum til Kaupþings
Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur boðað Chris Ronnie fyrrverandi forstjóra JJB Sports á sinn fund í næstu viku til að ræða sölu hans á hlutum í JJB Sports til Kaupþings. Eins og áður hefur komið fram var Ronnie viðskiptafélagi Exista í Bretlandi og um tíma átti hann og Exist um 30% hlut í JJB Sports.

Dönsk stjórnvöld kanna málssókn gegn eigin fjármálaeftirliti
Ríkisstjórn Danmerkur er nú að kanna hvort hægt sé að hefja málsókn (tjenestemandssag) gegn stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Ástæðan fyrir málsókinni er ábótavant eftirlit hins danska FME með Roskilde Bank sem varð gjaldþrota fyrr í ár.

Írskir skattgreiðendur fá 16.000 milljarða reikning
Írskir skattgreiðendur verða að punga út 80 milljörðum punda eða um 16.000 milljörðum kr. til að bjarga bönkum landsins frá hruni. Þetta er upphæðin sem írsk stjórnvöld hafa ákveðið að greiða fyrir ónýt lán í bönkum landsins. Þessum lánum verður safnað saman í einn „slæman banka" sem verður fjármagnaður af ríkissjóði landsins.

French Connection skilar 2,6 milljarða tapi
Breska verslunarkeðjan French Connection skilaði tapi upp á tæpar 13 milljónir punda, eða um 2,6 milljarða kr., fyrir skatta á sex mánaða tímabili sem lauk í endan á júlí. Tapið kemur þrátt fyrir nokkra söluaukningu eða um 4% hjá keðjunni á tímabilinu.

Metatvinnuleysi á Bretlandi
Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið meira í 15 ár, eða frá árinu 1994. Fjöldi atvinnulausra Breta jókst um 210 þúsund í 2,47 milljonir á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þetta sýna tölur sem breska blaðið Telegraph hefur frá hagstofunni þar í landi.

Facebook skilar hagnaði í fyrsta sinn
Mark Zuckerberg, hugmyndasmiðurinn að baki, nettengslasíðunnar Facebook tilkynnti nýlega að Facebook hefði skilað hagnaði í fyrsta sinn frá því að síðan var sett upp árið 2004.

Vilja kaupa Karen Millen og Oasis af Kaupþingi
Tískuvörurisinn Debenhams er nú sagður íhuga að fjárfesta í verslunarkeðjunum Karen Millen og Oasis sem nú eru í eigu Kaupþings en áður Baugs. Bloomberg segir frá þessu í kvöld en þetta er haft eftir innanbúðarmanni hjá Debenhams.

Enginn vildi dollara danska seðlabankans
Danskir bankar höfðu vægast sagt lítinn áhuga á að bæta lausafjárstöðu sína með dollurum sem í boði voru hjá danska seðlabankanum, Nationalbanken, í dag.

Auður Evrópu orðinn meiri en Bandaríkjanna
Bandaríkin eru ekki lengur heimili mesta auðs í heiminum. Evrópa hefur velt Bandaríkjamönnum úr sessi hvað þetta varðar. Auðæfi Bandaríkjanna hafa minnkað mest af öllum landsvæðum heimsins nú ári eftir fall Lehman Brothers.

Heimsmarkaðsverð á olíu aftur á uppleið
Heimsmarkaðsverð á olíu er aftur á uppleið og hækkaði WTI léttolían um 0,8% á markaðinum í New York undir lokin í gærkvöldi. Stendur verðið í 69,4 dollurum fyrir opnun markaðarins í dag.

Unibrew lækkar: Stór eigandi úti að synda í Atlantshafi
Hlutir í dönsku bruggverksmiðjunum Royal Unibrew hafa átt tvo afleita daga í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Í gærdag lækkuðu hlutirnir um tæp 10% og í dag hafa þeir lækkað um rúm 6% í viðbót. Á börsen.dk segir að ástæðan séu áhyggjur af miklum skuldum Unibrew og því að einn stærsti eigandinn sé..."úti að synda í Atlantshafinu, nánar tiltekið á Íslandi."

House of Fraser hyggur á útrás frá Bretlandi
Breska tískuverslunarkeðjan House of Fraser (HoF)hyggur nú á útrás frá Bretlandi og er að skipuleggja opnanir á nýjum verslunum í öðrum löndum. Samkvæmt frétt um málið í Retailweek er unnið að þessu samkvæmt þriggja ára áætlun sem eigandi HoF, Highland Group, hefur sett saman.

Líf fjárfestis með súludönsurum og kókaíni
Hinn þrítugi Tetsuya Ishikawa varð sterkefnaður á því að versla með „eitraða" skuldabréfavafninga. Nú er hann skilinn við konu sína sem er fyrrverandi súludansari, tugmilljóna bónusgreiðslur og lúxusbílinn. Í staðinn hefur hann skrifað bók um reynslu sína sem meðábyrgur fyrir fjármálakreppunni.

Norski olíusjóðurinn fitnar í 50 þúsund milljarða
Norski olíusjóðurinn heldur áfram að fitna og sína tölur að í ágúst náðu eignir hans verðmætinu rúmar 2.500 milljarðar norskra kr. eða rúmlega 50.000 milljarðar kr. Í ágúst einum nam eignaaukning sjóðsins 56 milljörðum norskra kr. eða vel yfir 1.000 milljörðum kr.

Japanski fjárfestirinn nátengdur stærsta kröfuhafa Glitnis
Hajime Satomi einn af japönsku fjárfestunum sem vildi kaupa Glitni í vetur í gegnum félagið Satomi & Ogasawara partnership er nátengdur Sumitomo Mitsui bankanum sem aftur er einn af stærstu kröfuhöfum Glitnis.

Fjárfestagoðsögn: Varar við gjaldmiðlakreppu
Fjárfestagoðsögnin Jim Rogers varar nú við því að gjaldmiðlakreppa gæti verið í aðsigi í kjölfar fjármálakreppunnar. Þess orð lét Roges falla í viðtali á CNBC.

Lehman Brothers: Dagurinn þegar Wall Street hrundi
Nú er að renna upp ársafmæli dagsins þegar Wall Street hrundi í kjölfar gjaldþrots fjárfestingabankans Lehman Brothers þann 15. september í fyrra. Gjaldþrotið var upphafið að verstu fjármálakreppu sem heimurinn hefur orðið fyrir síðustu 80 árin og raunar sér ekki enn fyrir endan á henni hjá fjölda þjóða.

Danske Bank: Kreppunni er lokið í Danmörku
Hagfræðideild Danske Bank telur að kreppunni sé lokið í Danmörku. Deildin býst við miklum hagvexti í alþjóðlega hagkerfinu næstu sex til níu mánuði. Í Danmörku gerir deildin ráð fyrir töluverðum hagvexti á næstu ársfjórðungum.

Yfir 50 milljarða skuld eins og snara um háls Unibrew
Skuldir sem nema yfir 2 milljörðum danskra kr. eða yfir 50 milljörðum kr. eru eins og snara um háls Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðja Danmerkur. Forstjórinn Henrik Brandt segir að það sé forgangsatriði í rekstrinum að draga úr þessum skuldum.

Segja björgunarpakkann hafa skapað yfir milljón störf
Starfsmenn Hvíta hússins í Washington fullyrða að björgunarpakkinn sem Bandaríkjaþing samþykkti fyrr á árinu hafi nú þegar skapað 1,1 milljón ný störf í Bandaríkjunum.

Heildarfjöldi gjaldþrota banka nálgast eitt hundrað
Regluverðir í Bandaríkjunum lokuðu þremur bönkum þar í landi í gær, en alls hafa 92 bankar orðið gjaldþrota í Bandaríkjunum það sem af er ári. Bankarnir eru staðsettir Illinois, Minnesota og Washington.

Obama beitir sér gegn kínverskum dekkjum
Ráðamenn í Washington tilkynntu í gær um hækkun tolla á innflutt dekk frá Kína. Fá dæmi eru fyrir því að Bandaríkjamenn beiti fyrir sér sérstökum verndartollum til að vernda innlendra framleiðslu gegn kínverskri samkeppni.

Lufthansa: Flugliðar í þjóðbúninga og leðurhosur
Þýska flugfélagið Lufthansa ætlar að halda upp á Októberhátíðina í 30.000 fetum. Í tilefni hennar munu flugliðar Lufthansa kasta búningum sínum og klæðast í þess stað suðurbæverska þjóðbúningum „dirndl" eða leðurhosum eftir því hvers kyns flugliðarnir eru.

Ellibylgjan: Yfir 40.000 Japanir eru 100 ára eða eldri
Meðalaldur japönsku þjóðarinnar fer nú ört hækkandi og eru yfir 40.000 Japanir orðnir 100 ára og eldri. Hefur þessum aldurshópi fjölgað um 10% á einu ári.

Dýrasti hundur sögunnar keyptur á 70 milljónir
Hundur af tíbetsku kyni með nafnið Yangtze Fljótið Númer Tvö hefur verið seldur konu í Shaanxi héraði í Kína fyrir rúmar 70 milljónir kr. Er hann því dýrasti hundur sögunnar.