Viðskipti erlent

Marel: Stóðum rétt að málum
Marel Food Systems segir óumdeilt að stjórnarformaður fyrirtækisins hafi að öllu leyti staðið rétt að framkvæmd viðskipta tveggja fjárhagslega tengdra aðila stjórnarformanns fyrirtækisins, að fram kemur í tilkynningu.

Danskt fasteignafélag í klemmu eftir hrun Straums
Hið nýstofnaða fasteignafélag Pecunia Properties er komið í klemmu aðeins fjórum dögum eftir að það var stofnað í Kaupmannahöfn. Straumur var einn af stofnendum félagsins og átti þar að auki hlut í öðru félagi sem stendur að Pecunia, það er Property Group.

Verðbréfamiðlun Straums í London bíður fyrirmæla frá Íslandi
Teathers, verðbréfamiðlun Straums í London, bíður nú fyrirmæla frá Íslandi. Starfsemi Teathers hefur legið niðri síðan í morgun þar sem kauphöllin í London hefur lokað fyrir öll viðskipti á vegum miðlunarinnar vegna hruns Straums á Íslandi.

Fjölskylda bílasala í Köge græddi 14 milljarða á skortsölu
Fjölskylda fyrrum bílasala í Köge á Sjálandi í Danmörku græddi 700 milljónir danskra kr. eða tæplega 14 milljarða kr. á skortsölu á danska hlutabréfamarkaðinum á síðasta ári.

Stjórn Magasin du Nord vonast eftir sölu á næstunni
Stjórn Magasin du Nord vonast eftir því að stórverslunin verði seld á næstunni í framhaldi af því að Straumur fór undir stjórn Fjármálaeftirlitsins í morgun.

Lokað fyrir Straum í norrænum kauphöllunum
Lokað var fyrir viðskipti með hluti í Straumi í kauphöllunum í Kaupmannahöfn, Osló og Helsinki í morgun.

Nikkei-vísitalan ekki lægri síðan 1982
Hlutabréf lækkuðu í verði í Asíu í morgun og varð lækkunin slík í Japan að Nikkei-vísitalan hefur ekki verið lægri síðan haustið 1982. Vísitalan hefur þar með lækkað um fimmtung það sem af er árinu.

Obama velur aðstoðarfjármálaráðherra
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur valið þrjá menn til þess að gegna forystuhlutverkum í bandaríska fjármálaráðuneytinu. Fjármálaráðherra hefur verið gagnrýndur nokkuð að undanförnu fyrir að vera ekki með fullmannað ráðuneyti.

Seðlabanki Bandaríkjanna mun beita öllum tiltækum ráðum
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben Bernanke, sagði í dag að bankinn myndi nota öll tiltæk verkfæri til þess að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum og koma Bandaríkjunum úr kreppunni.

Breska ríkið eignast 75% í Lloyds bankanum
Breska ríkið mun ráða yfir allt að sjötíu og fimm prósent hlut í Lloyds bankanum í Bretlandi, eftir ákvörðun sem tekin var í gærkvöld. Samkvæmt nýju samkomulagi mun breska ríkið eignast 65% í Lloyds bankanum í Bretlandi, en áður hafði verið tilkynnt um að eignarhlutur ríkisins yrði 43%.

Fréttaskýring: Gjaldþrot AIG hefði sett Evrópu á hliðina
Skuldatryggingar á lánum og verðbréfum ríkisstjórna, banka og fjármálafyrirtækja eru orðin tifandi tímasprengja undir öllu fjármálakerfi heimsins. Markaðurinn á útistandi skuldatryggingum er mældur í fleiri trilljónum dollara eða hundruðum þúsunda milljarða kr. og menn eru að velta því fyrir sér hvað eigi að gera við þennan nornapott sem gæti á endanum látið núverandi fjármálakreppu líta út eins og barnagælur á leikskólavelli.

Ofurkokkurinn Gordon Ramsey í fjárhagsvandræðum
Ofurkokkurinn, Íslandsvinurinn og strigakjafturinn Gordon Ramsey er kominn í veruleg fjárhagsvandræði.

Um 2.500 störf í hættu eftir kaup Debenhams á Principles
Kaup Debenhams á merki og vörulager Principles verslunarkeðjunnar þýðir að störf um 2.500 manns eru nú í hættu á Bretlandseyjum.

Barbie flýr fjármálakreppuna og flytur til Sjanghæ
Barbie dúkkan er búin að pakka saman dóti sínu í bleiku ferðatöskurnar og er flutt til Sjanghæ í Kína. Fjármálakreppan er sögð ástæða flutningsins frá Bandaríkjunum.

Breskur fasteignalánasjóður tapar stórt á íslensku bönkunum
Breski fasteignalánasjóðurinn Newcastle Building Society (NBS) tapaði stórum fjárhæðum á hruni íslensku bankanna á síðasta ári. Tapið nemur tæplega 36 milljón pund eða tæpum 6 milljörðum kr..

Kreppan í Austur-Evrópu veldur Actavis erfiðleikum
Fjármálakreppan í Austur-Evrópu og miðhluta álfunnar veldur Actacvis erfiðleikum en um 40% af sölu félagsins er á þessum svæðum.

Novator gerir kröfu um breytingar á stjórn Amer Sports
Novator, í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, hefur gert kröfu um að breytingar verði gerðar á stjórn íþróttaverslunnarkeðjunnar Amer Sports í Finnlandi. Hefur Novator farið fram á aukahluthafafund af þessum sökum.

ECB tapaði 800 milljörðum á íslensku bönkunum og Lehman
Evrópski seðlabankinn (ECB) tapaði 5,7 milljörðum evra eða rúmlega 800 milljörðrum kr. á hruni íslensku bankanna í haust, á gjaldþroti Lehman Brothers og hollenska bankanum Indover NL.

Bréf lækka í Asíu
Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í verði í morgun í kjölfar lækkunar á Wall Street í gær en þar féllu bréf Citigroup-bankans svo langt niður að verðið á hlut fór niður fyrir einn dollara í fyrsta sinn í sögu bankans. Í Japan varð lækkunin einna mest hjá bílaframleiðandanum Honda, 5,3 prósent, enda dregst sala nýrra bíla nú saman um allan heim. Eins lækkuðu bréf Billington-námafyrirtækisins um tæp þrjú prósent.

Hlutabréf lækkuðu verulega á Wall Street
Töluverðar lækkanir urðu á Wall Street vegna ótta um stöðu stærstu banka Bandaríkjanna og vanda General Motors sem talinn er fara vaxandi. Dow Jones lækkaði um 4,09%, S&P 500 lækkaði um 4,25 og Nasdaq lækkaði um 4%. Lækkunin í dag étur upp þá hækkun sem varð á mörkuðum í gær.

Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri
Englandsbanki lækkaði í dag stýrivexti og standa þeir nú í hálfu prósenti. Þeir hafa aldrei verið lægri.

Hagnaður bjórrisa dragast verulega saman
Bjórrisinn Anheuser-Bush Inbev hagnaðust um 62 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði sjö milljarða króna, á síðasta ársfjórðungi. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára.

Asíubréf á uppleið
Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf framleiðslu- og byggingarfyrirtækja sem hækkuðu mest. Bréf námufyrirtækisins Billington hækkuðu um tæplega fjögur og hálft prósent og bréf japanska bílaframleiðandans Mazda hækkuðu um 11 prósent eftir veikingu jensins en stór hluti Mazda-bíla er fluttur úr landi og seldur á erlendum mörkuðum.

Allar helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street
Allar helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street hækkuðu í dag. Dow Jones hækkaði um 2,23% en er enn undir 7000 stigunum. S&P 500 hækkaði um 2,38% og fór yfir 700 stigin. Þá hækkaði Nasdaq um 2,48%.

Eimskip með ítök í siglingum á Miðjarðarhafi
Containerships í Finnlandi sem að hluta til er í eigu Eimskip hefur yfirtekið rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í Miðjarðarhafinu.

Sigurður Einarsson farin úr stjórn Storebrand
Sigurður Einarsson er farin úr stjórn norska tryggingarrisans Storebrand. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Segir Actavis íhuga að búta félagið niður fyrir sölu
Bloomberg fréttaveitan segist hafa heimildir fyrir því að eigendur Actavis íhugi nú að búta félagið niður og selja það í pörtum. Slíkt geti verið auðveldara en að selja félagið í heilu lagi.

Irish Life tapaði stórt á Íslandi en þarf ekki ríkisaðstoð
Irish Life & Permanent, stærsti fasteignalánasjóður Írlands tapaði stórum fjárhæðum á hruni íslensku bankanna s.l. haust. Hinsvegar segist Irish Life ekki þurfa á ríkisaðstoða að halda eins og fjöldi annarra fjármálastofnanna og banka á Írlandi.

Hækkun á Asíumörkuðum
Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun þegar trú fjárfesta á björgunaraðgerðir ríkisstjórna víða um heiminn óx. Í Kína hækkuðu bréf stærsta álframleiðandans um 5,6 prósent og stærsta smásöluverslunarkeðja Japans hækkaði einnig í verði. Bréf Toyota halda þó áfram að lækka og hefur minnkandi bílasala í Bandaríkjunum töluverð áhrif þar en stór hluti framleiðslu Toyota fer á Bandaríkjamarkað.

Bílasala í Bandaríkjunum dróst saman um 40 prósent
Bílasala í Bandaríkjunum dróst saman um liðlega 40 prósent í síðasta mánuði og þarf að fara 28 ár aftur í tímann til að finna álíka sölutölur. Óseldir bílar hrannast upp hjá bílaverksmiðjunum, sem sjá ekki fram á að salan glæðist fyrr en seint í haust, í fyrsta lagi.