Viðskipti innlent

Stýrir nýju sölusviði eftir uppsagnir hjá Nóa Síríus
Hinrik Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýs sölusviðs hjá Nóa Siríus hf. Fjórum var sagt upp í tengslum við endurskipulagningu á skipuriti fyrirtækisins.

Samkomulag í höfn um skilmála yfirtökutilboðs JBT í allt hlutafé í Marel
Marel hefur undirritað samkomulag við John Bean Technologies Corporation (JBT) um helstu skilmála í tengslum við fyrirhugað yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé í Marel, líkt og áður hefur verið tilkynnt um. Yfirtökutilboðið, sem felur í sér valfrjálst yfirtökutilboð á verðinu 3,60 evrur á hlut, verði lagt fram í maí næstkomandi og gert ráð fyrir að viðskiptin verði frágengin fyrir árslok.

Bein útsending: Ársfundur Seðlabanka Íslands
Ársfundur Seðlabankans fer fram í Hörpu í dag og hefst hann klukkan 16. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Rögnvaldur nýr yfirlögfræðingur hjá Landspítala
Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson hefur verið ráðinn sem yfirlögfræðingur Landspítala. Hann hóf störf í síðasta mánuði.

Síðasta vígi norrænna seðla fallið
Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur.

Hækka lánshæfismat bankanna
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hækkaði í dag lánshæfismat Íslandsbanka, Landsbankans og Arion banka úr BBB í BBB+. Efnahagslegt ójafnvægi er sagt hafa dvínað og eru horfur stöðugar.

Mun leiða arkitektastofuna Arkitema á Íslandi
Hallgrímur Þór Sigurðsson, arkitekt og fyrrverandi framkvæmdastjóri Nordic Office of Architecture, hefur verið ráðinn til að stýra útibúi dönsku arkitektastofunnar Arkitema á Íslandi.

Lækkar óverðtryggða en hækkar verðtryggða
Arion banki hefur breytt inn- og útlánavöxtum bankans frá og með deginum í dag. Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 8,95 prósent og verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 4,04 prósent.

Hækkuðu bindiskyldu lánastofnana á aukafundi
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka fasta bindiskyldu lánastofnana úr tveimur prósentum í þrjú prósent af bindigrunni. Breytingin tekur gildi við byrjun næsta bindiskyldutímabils, 21. apríl næstkomandi.

Hagnaðardrifin leigufélög umsvifamest í nágrenni höfuðborgarsvæðis
Hlutfall leiguíbúða sem reknar eru af hagnaðardrifnum leigufélögum er hærra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en í öðrum landshlutum samkvæmt upplýsingum úr leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Vildi aftur einn lækka vexti
Svo virðist sem Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, sé á öndverðum meiði við aðra meðlimi peningastefnunefndar. Annan fund nefndarinnar í röð var hann sá eini sem greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum.

Bein útsending: „Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár“
„Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár“ er yfirskrift SFF-dagsins sem haldinn er af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og fram fer milli klukkan 15 og 17 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Hættir eftir sautján ára starf
Kristinn Albertsson fjármálastjóri Samskipa samstæðunnar hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. júlí næstkomandi. Hann hefur starfað hjá Samskipum í rúm sautján ár og á þeim tíma að mestu verið staðsettur í Rotterdam.

Síleskt félag Björgólfs í greiðslustöðvun og hann hrynur niður listann
Síleskt fjarskiptafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur sótt um greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Á nýútgefnum lista Forbes yfir milljarðamæringa í dollurum talið hrynur Björgólfur um ríflega þrjú hundruð sæti. Hann er eftir sem áður eini Íslendingurinn á listanum.

Lára ráðin til stýra almannatengsladeild Pipar/TBWA
Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Láru Zulima Ómarsdóttur í starf leiðtoga almannatengsla (Head of Communication & Public Relations) og mun hún stýra almannatengsladeild stofunnar.

Ráðin yfirlögfræðingur VÍS trygginga
Bergrún Elín Benediktsdóttir hefur verið ráðin sem yfirlögfræðingur VÍS trygginga.

Reikna með 220 milljörðum króna í tekjur
Í afkomuspá Icelandair fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að heildartekjur ársins nemi 220 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir tveggja til fjögurra prósenta rekstrarhagnaði af tekjum.

Auka sætaframboð til Íslands með breiðþotum
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hyggst auka sætaframboð í flugferðum sínum frá New York til Íslands og notar nú Boeing 767 breiðþotu á leiðinni í stað Boeing 757. Fyrsta þota flugfélagsins þetta árið kom til Keflavíkur frá New York í morgun. Þetta er þrettánda árið sem Delta flýgur milli Íslands og Bandaríkjanna.

Meirihluti óánægður með áform Landsbankans
Meirihluti þjóðarinnar er óánægður með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Þetta leiðir ný könnun Prósents í ljós.

Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga
Hver einstaklingur má að hámarki kaupa í Íslandsbanka fyrir tuttugu milljónir. Samkvæmt nýju frumvarpi um sölu bankans sem lagt hefur verið fyrir Alþingi verður áhersla lögð á að selja til einstaklinga, sem munu njóta forgangs við úthlutun.

Lok, lok og læs hjá Gló
Veitingastaðnum Gló verður lokað í dag og lýkur þar með sautján ára rekstrarstögu hans. Gló hefur verið rekið í Austurstræti og Fákafeni undanfarin ár. Vinsælar vörur Gló verða áfram í boði á matseðli Saffran sem tekur við rekstri veitingastaðanna.

Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka
Formaður Starfsgreinasambandsins segir að betur hefði farið að Íslandbanki lækkaði vexti eða þjónustugjöld viðskiptavina en að gefa starfsfólki sínu rándýra sumargjöf. Bankinn hefur um árabil gefið öllu starfsfólki sínu gjafabréf í sumargjöf.

Hundrað þúsund kall á haus
Íslandsbanki kemur til með að gefa öllum starfsmönnum sínum 100 þúsund króna sumargjöf. Um 700 manns starfa hjá bankanum, og því er um 70 milljóna króna útgjöld fyrir bankann að ræða.

Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair
Forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segir Keflavíkurflugvöll of dýran og Ísland ekki nógu spennandi áfangastað til þess að félagið geri landið að einum áfangastaða.

Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Alvotech fékk kaupauka að andvirði rúmlega þrjú hundruð milljóna króna á dögunum.

Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ
Sigurður Árnason hefur verið ráðinn í starf lögfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum.

Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2024, hækkar um 0,80 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga er 6,8 prósent og hækkar um 0,1 prósentustig milli mánaða. Hagfræðingur kennir húsnæðisliðnum um.

Fundar með Bankasýslunni í dag
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra segir næsta skref hjá sér, vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum, vera að funda með Bankasýslu ríkisins. Boðað hefur verið til fundar um málið í dag.

Bankasýslan þögul sem gröfin
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hyggst ekki veita viðtal um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Óljóst er hvort Bankasýslan fallist á frásögn formanns bankaráðs af símtali, þar sem hann segist hafa upplýst stjórnarformann Bankasýslunnar um óskuldbindandi tilboð bankans í TM.

Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið
Festi hefur óskað eftir formlegum sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið um möguleg skilyrði vegna kaupa félagsins á Lyfju.