Skoðun

Ómaklega að embættismönnum vegið

Björn Bjarnason skrifar
Hinn 1. janúar 2007 var embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum stofnað og var Jóhann Benediktsson, sem hafði verið sýslumaður á Keflavíkur­flugvelli síðan 1999, skipaður í embættið. Fram til 1. janúar 2007 starfaði Jóhann Benediktsson undir forræði utanríkisráðuneytis og hann var starfsmaður í utanríkisþjónustunni, þegar utanríkisráðherra skipaði hann sem sýslumann.

Jóhann var eini sýslumaðurinn undir forræði utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytis og fór auk lögreglumála með stjórn tollamála og flugverndar­mála í umboði utanríkis­ráðherra. Nánustu yfirmenn Jóhanns voru stjórnar­erindrekar eða diplómatar, sem gegndu að jafnaði störfum hér á landi í nokkur ár, enda skylt að hlíta fyrirmælum um flutning milli landa.





Breytt starfsumhverfiMeð flutningnum til dóms- og kirkjumálaráðuneytis breyttist allt starfsumhverfi Jóhanns. Hann féll inn í stjórnkerfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, þar sem embætti ríkislögreglustjóra hefur skýru lögbundnu hlutverki að gegna sem milliliður með sérþekkingu milli ráðuneytis og einstakra lögregluembætta. Innan dóms- og kirkjumálaráðuneytis er mikil reynsla af lögreglustjórn, eftirliti með fjárhag og rekstri lögregluembætta auk alls þess, sem þarf að hafa í heiðri við löggæslu og framkvæmd hennar.

Nú þegar Jóhann hefur beðist lausnar og veitir viðtöl af því tilefni, beinist gagnrýni hans að mér persónulega, ríkislögreglustjóra og nú síðast dómsmálaráðuneyti og jafnvel nafngreindum embættismönnum innan þess.

Um persónuleg samskipti okkar Jóhanns ítreka ég, að í ráðherratíð minni hef ég lagt mig fram um að auðvelda honum vistaskiptin, meðal annars á löngum einkafundi á heimili mínu, skömmu eftir að ég kom af sjúkrahúsi vorið 2007. Jóhann má túlka þessi samskipti okkar á þann veg, sem honum þykir nú hæfa og sagt þau til marks um hroka eða að vera gamaldags.

Ég mótmæli því hins vegar eindregið og afdráttarlaust, að vegið sé að starfsheiðri einstakra embættismanna, embætti ríkislögreglustjóra eða dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og hæfni þeirra, sem fara með yfirstjórn lögreglumála, á þann veg, sem Jóhann kýs að gera. Þessi embætti eða embættismenn eiga það alls ekki skilið og til þeirra ber ég fullt traust.





Undir forræði ríkislögreglustjóraHaustið 2007 voru birtar niðurstöður í rannsókn á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Rúmlega átta forstöðumenn af hverjum tíu hjá sýslumannsembættum, löggæslu og fangelsum telja að dóms- og kirkjumálaráðuneytið svari erindum fljótt og vel. Ráðuneytið skorar þar með hæst allra ráðuneyta í þessum flokki í könnuninni.

Af orðum fráfarandi lögreglustjóra á Suðurnesjum dreg ég þá ályktun, að hann hafi aldrei sætt sig við að hverfa frá því að vera eini lögreglustjórinn á forræði utanríkisráðuneytis og þurfa að sætta sig við reglur, fjármála- og starfsaga á vettvangi dóms- og kirkjumálaráðuneytis, þar sem hann varð einn 15 lögreglustjóra frá 1. janúar 2007 og ótvírætt undir lögbundnu forræði ríkis­lögreglustjóra.

Þegar ég ákveð að auglýsa embætti lögreglustjórans og vísa, þegar eftir skýringum var leitað hjá mér, til þeirra breytinga, sem orðið hafa á embættinu og meðal annars á launakjörum embættismannsins, eftir að sýslumanns­embættið á Keflavíkurflugvelli var aflagt vorið 2008, tekur Jóhann þann kost að segja embættinu lausu frá 1. október 2008. Að hann skuli gera það með því að hreyta ónotum í samstarfsmenn sína hjá embætti ríkislögreglustjóra og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu er með öllu ómaklegt.

Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra








Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×