Fótbolti

Fátt virðist stöðva AC Milan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flamini skoraði eina mark AC Milan í dag. Mynd. / Getty Images
Flamini skoraði eina mark AC Milan í dag. Mynd. / Getty Images
Fjölmargir leikir fóru fram í ítalska boltanum í dag en helst ber að nefna góðan sigur hjá AC Milan gegn Bologna 1-0, en Mathieu Flamini skoraði eina mark leiksins á 8. mínútu leiksins.

AC Milan heldur því enn öruggri forystu á toppi deildarinnar, en þeir eru með 77 stig helium átta stigum á undan Inter Milan. Það virðist því fátt geta stöðvað AC Milan í kapphlaupinu um ítalska meistaratitilinn.

Úrslit dagsins:

Sampdoria 3-3 Brescia

Milan 1-0 Bologna

Catania 2-0 Cagliari

Fiorentina 5-2 Udinese

Chievo 1-0 Lecce

Parma 3-1 Palermo

 

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×