Handbolti

Eyjakonur tryggðu sér þriðja sætið / Úrslit og markaskorarar kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ester Óskarsdóttir var góð í kvöld.
Ester Óskarsdóttir var góð í kvöld. Mynd/Valli
ÍBV tryggði sér 3. sætið í N1 deild kvenna eftir sex marka sigur á Stjörnunni í Eyjum í kvöld. HK náði Stjörnunni að stigum með því að vinna nauman sigur á Haukum og Grótta hélt KA/Þór fyrir neðan sig þegar liðin gerðu jafntefli á nesinu.

Ester Óskarsdóttir skoraði 12 mörk fyrir ÍBV sem vann Stjörnuna 30-24. ÍBV hefur þar með fjögurra stiga forskot á Garðabæjarkonur þegar aðeins ein umferð er eftir.

Elín Anna Baldursdóttir skoraði 11 mörk þegar HK vann Hauka 34-31 á heimavelli. HK náði þar með Stjörnunni að stigum í baráttunni um fjórða sætið. Röð liðanna mun ráðast í lokaumferðinni.

Gróttukonur héldu KA/Þór fyrir neðan sig í baráttunni um sjötta sætið og það síðasta sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni. Liðin gerðu 23-23 jafntefli á Seltjarnarnesi í kvöld en KA/Þór á mjög erfiðan leik á móti Val í lokaumferðinni.



Úrslit og markaskorarar í leikjum kvöldsins:

ÍBV - Stjarnan 30-24 (14-9)

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 12, Ivana Mladenovic 6, Georgeta Grigore 4, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 2, Marijana Trbojevic 2,

Hildur Dögg Jónsdóttir 1, Drífa Þorvaldsdóttir 1, Rakel Hlynsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Rut Steinsen 5, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 5, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 5, Solveig Lára Kjærnested 2, Hildur Harðardóttir 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 1, Arna Dýrfjörð 1, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 1.



HK - Haukar 34-31 (18-17)

Mörk HK: Elín Anna Baldursdóttir 11, Heiðrún Björk Helgadóttir 7, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 5, Elva Björg Arnarsdóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Arna Björk Almarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Harpa Baldursdóttir 1.

Mörk Hauka: Marija Gedroit 12, Ásta Björk Agnarsdóttir 7, Karen Helga Sigurjónsdóttir 5, Viktoría Valdimarsdóttir 4, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Silja Ísberg 1, Ásthildur Friðgeirsdóttir 1.



Grótta - KA/Þór 23-23 (12-9)

Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 9, Tinna Laxdal 4, Unnur Ómarsdóttir 4, Elín Helga Jónsdóttir 4, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 1, Björg Fenger 1.

Mörk KA/Þór: Katrín Vilhjálmsdóttir 7, Martha Hermannsdóttir 6, Erla Tryggvadóttir 3, Jóhanna Snædal 3, Ásdís Sigurðardóttir 3, Hulda Tryggvadóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×