Handbolti

Valur og Fram enn með fullt hús stiga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram.
Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram.
Fram gerði í dag góða ferð til Vestmannaeyja og vann þar sex marka sigur á ÍBV en heil umferð fór fram í N1-deild kvenna í dag.

Fram er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, rétt eins og Valur sem vann öruggan sigur á Gróttu í dag.

Stjarnan, Haukar og HK unnu einnig sigra í sínum leikjum.

Úrslit dagsins í N1-deild kvenna:

Fylkir - Stjarnan 21-27 (12-18)

Ingibjörg Karlsdóttir 5, Tatjana Zukovska 4 - Helena Rut Örvarsdóttir 8, Hanna G. Stefánsdóttir 8.

ÍBV - Fram 21-27 (10-15)

Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Grigore Gorgata 5 - Ásta Birna Gunnarsdóttir 7, Stella Sigurðardóttir 5, Elísabet Gunnarsdóttir 5.

Selfoss - Haukar 21-23 (9-12)

Carmen Palamariu 8, Kristrún Steinþórsdóttir 5 - Marija Gedroit 5, Díana Kristín Sigmarsdóttir 5.

Valur - Grótta 39-23 (17-12)

Þorgerður Anna Atladóttir 13, Dagný Skúladóttir 11 - Sunna María Einarsdóttir 6, Unnur Ómarsdóttir 4.

HK - Afturelding 29-16 (14-9)

Jóna Sigríður Halldórsdóttir 11, Heiðrún Björk Helgadóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4 - Sara Kristjánsdóttir 5, Hekla Daðadóttir 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×