Handbolti

Tveir sigrar í röð hjá bæði Haukum og FH

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margar ungar og efnilegar stelpur spila með Haukaliðinu. Hér eru bikarmeistarar frá því í 3. flokki í fyrra.
Margar ungar og efnilegar stelpur spila með Haukaliðinu. Hér eru bikarmeistarar frá því í 3. flokki í fyrra. Mynd/Fésbókin
Kvennalið Hauka í handboltanum fagnaði sigri á móti Gróttu í 4. umferð N1 deild kvenna í handbolta í dag. Haukaliðið tapaði illa á móti Val í fyrsta leik en hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína. FH-liðið sótti tvö stig á Selfoss og er einnig búið að vinna tvo leiki í röð.

Grótta var tveimur mörkum yfir í hálfleik en slakur seinni hálfleikur var liðinu enn að falli á þessu tímabili. Haukarkonur unnu leikinn 21-20 en í leiknum á undan sóttu þær tvö stig á Selfoss.

Leikurinn var spennandi og það er ljóst að það verður hart barist um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina í vor. Með þessum sigri komust Haukakonur upp fyrir Gróttu í töflunni.

FH-konur unnu öruggan sigur á nýliðum Selfoss en á endanum munaði sjö mörkum á liðunum. Líkt og Haukaliðið þá tapaði FH fyrsta leik en hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína sem hafa verið á móti nýliðunum Aftureldingu og Selfossi.



Haukar - Grótta 21-20 (10-12)

Mörk Hauka: Marija Gedroit 6, Díana Ágústsdóttir 4, Ásthildur Friðgeirsdóttir 4, Karen Helga Sigurjónsdóttir 3, Sigríður Herdís Hallsdóttir 3, Gunnhildur Pétursdóttir 1.

Mörk Gróttu: Eva Björk Davíðsdóttir 5, Sunna Maria Einarsdóttir 4, Þórunn Friðriksdóttir 3, Harpa Baldvinsdóttir 2, Tinna Laxdal Gautadóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 1, Elín Helga Jónsdóttir 1.



Selfoss - FH 21-28 (11-14)

Mörk Selfoss: Carmen Palamprill 8, Þuríður Guðjónsdóttir 4, Tinna Traustadóttir 3, Kristín Steinþórsdóttir 2, Hildur Einarsdóttir 2, Kara Árnadóttir 1, Dagný Hróbjartsdóttir 1.

Mörk FH: Steinunn Snorradóttir 7, Elín Anna Baldursdóttir 5, Bergling Ósk Björgvinsdóttir    5, Ásdís Sigurðardóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 3, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 2, Salka Þórðardóttir 1, Sigrún Jóhannsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×