Fótbolti

Roma bar sigur úr býtum gegn Napoli í toppslagnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Miralem Pjanic fagnar hér marki í kvöld.
Miralem Pjanic fagnar hér marki í kvöld. nordicphotos/getty
AS Roma vann flottan sigur, 2-0, á Napoli í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Miralem Pjanic skoraði bæði mörk Roma í leiknum en fyrra markið kom á lokamínútu fyrri hálfleiksins en hið síðara tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Paolo Cannavaro, leikmaður Napoli, kom inn á í hálfleik en var farinn útaf á 70. mínútu eftir að hafa fengið tvö gul spjöld og því rautt.

Roma er í efsta sæti deildarinnar með 24 stig en Napoli í því öðru með 19 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×