Skoðun

Stöðvum landflótta vits og strits

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjölmiðlar hafa sagt fjölmargar fréttir af ís­lenskum fyrirtækjum sem hafa hrakist úr landi vegna gjaldeyrishaftanna. Stjórnendur fyrirtækjanna hafa þá lýst því hversu erfitt það er að lokka erlenda fjárfesta hingað til lands. Þeir vilji ekki festast með peningana sína á eyju sem er umlukin girðingu gjaldeyrishafta. Í sumum tilvikum eru höfuðstöðvarnar fluttar úr landi. Í öðrum er öll starfsemin flutt eða seld erlendum aðilum.

Fréttir sem þessar voru sagðar á síðum Fréttablaðsins og Markaðarins í vetur. Í janúar var sagt frá því hvernig mörg fyrirtæki sem koma að þróun jarðvarmaverkefna um allan heim hefðu hrakist úr landi. Innlend þekking fékk þá erlent heimilisfang og buddur annarra ríkja græddu á íslensku striti.

Þegar sögur sem þessar rata á síður blaðanna gera margir ráð fyrir að málum verði kippt í liðinn. Það hefur enn ekki gerst. Viðskiptablaðið greindi frá því í byrjun síðustu viku að íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mint Solutions þyrfti að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi. María Rúnarsdóttir, einn stofnenda fyrirtækisins, sagði gjaldeyrishöftin ástæðu flutninganna.

Kauphöllin, Nasdaq OMX Iceland, hélt um daginn lokaðan fund fyrir fagfjárfesta og stjórnendur ellefu nýsköpunarfyrirtækja. Þangað mættu meðal annars forsvarsmenn GreenQloud, Kerecis, Nox Medical og Orf líftækni til að kynna sögu, framleiðslu og framtíðarmarkmið fyrirtækjanna. Markmið fundarins var að vekja fjárfestana og aðra til vitundar um hversu nauðsynlegt það er fyrir nýsköpunarfyrirtæki að hafa aðgang að innlendu fjármagni. Skráning á First North-markað Kauphallarinnar var þar nefnd sem einn valmöguleiki. En auðvitað þurfa valmöguleikarnir að vera fleiri ef koma á í veg fyrir að þessar þolinmóðu vonarstjörnur flýi til útlanda.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, ræddi afnám haftanna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku. Tilefnið var ný Skoðun Viðskiptaráðs Íslands. Í henni er bent á að uppgjör þrotabúa föllnu bankanna vegur þyngst í þeirri staðreynd að afnám gjaldeyrishafta hefur dregist verulega umfram það sem upphaflegar væntingar stóðu til. Í viðtalinu sagði ráðherra stjórnvöld hafa nýtt tímann vel til að kortleggja vandann við afnám haftanna. „Ég er með væntingar um að það verði stórir áfangar stignir á þessu ári,“ sagði Bjarni.

Vonandi verða þessir stóru áfangar sem ráðherra talaði um nógu stórir til að koma í veg fyrir fleiri forsíðufréttir um landflótta íslensks vits og strits.




Skoðun

Sjá meira


×