Enski boltinn

Marin til Fiorentina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Marko Marin leikur í ítölsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Marko Marin leikur í ítölsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Vísir/Getty
Þýski miðjumaðurinn Marko Marin mun leika sem lánsmaður með Fiorentina á næstu leiktíð.

Marin kemur frá Chelsea, en hann gekk í raðir Lundúnaliðsins frá Werder Bremen 2012. Þjóðverjanum hefur hins vegar ekki tekist að vinna sér sæti í liði Chelsea, en hann var lánaður til Sevilla á síðustu leiktíð.

Marin lék 30 leiki og skoraði tvö mörk fyrir Sevilla sem endaði í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og vann Evrópudeildina í fyrra.

Marin lék 16 leiki með þýska landsliðinu á árunum 2008-2010.

Fiorentina mætir Roma í sínum fyrsta leik í ítölsku úrvalsdeildinni 30. ágúst næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×