Framsóknarterta tollarans Jakob Bjarnar skrifar 14. nóvember 2014 16:38 Vísir
Guðbjörn Guðbjörnsson yfirtollvörður er svo þakklátur Framsóknarflokkinn vegna skuldaniðurfellinganna að hann lét baka tertu honum til heiðurs. „Myllan bakaði tertuna. Bakarinn kom fram og vildi sjá hver hefði pantað þetta. Þegar ég kom inn sagðist ég vera frá Framsóknarflokknum og þetta væri fyrir þingflokksfund. Fólkið varð vandræðlegt. Ógleymanlegt móment,“ segir Guðbjörn Guðbjörnsson yfirtollvörður og söngvari í samtali við Vísi. Guðbjörn hefur látið til sín taka í stjórnmálum með margvíslegum hætti. Hann segist ekki sammála Framsóknarflokknum í mörgu, en sannarlega hvað þessar aðgerðir varðar. Og mun hann taka sérstaklega til máls á fundi sem Framsóknarflokkurinn stendur fyrir, en þar stendur til að fagna sérstaklega og ræða nýlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum húsnæðiseigenda. Vísir skrifaði stutta úttekt þar sem greint var frá þakklátum þegnum þessa lands vegna skuldaniðurfellinganna, þar var Guðbjörn efstur á blaði og vitnaði þingmaður Framsóknarflokksins sérstaklega til orða hans í ræðustól Alþingis.Ertu orðinn innsti koppur í búri Framsóknarflokksins? „Það held ég nú ekki. Þeim mun bregða ef þeir byrja afur með ESB málið að ég tali nú ekki um moskumálið eða MS o.s.frv. Nei, ég styð þá í þessu eina máli og síðan vil ég ekkert gefa eftir í samskiptum við kröfuhafana. Ég var frá byrjun (október 2008) andsnúinn nokkrum samningum varðandi Icesave og tók þátt í InDeFence. Að öðru leyti hef ég ýmigust á Framsóknarflokknum. Ég held við verðum í framtíðinni að taka afstöðu til flokka út frá hverju máli fyrir sig en ekki vera flokknum trúir til dauðadags,“ segir Guðbjörn léttur í bragði. Það verða starfsmenn Tollaraembættisins sem fengu að gæða sér á tertunni, en Guðbjörn segir hana nú ekki síst til komna í gríni og glensi. En viðbrögðin voru blendin og má það heita til marks um hversu umdeilt málið er: „Fussaði fólk ýmist og sveiaði og strunsaði í burt blótandi Framsóknarflokknum eða borðaði af bestu lyst kökuna góðu.“
Alþingi Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Erlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskjáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Sjá meira