Fótbolti

Emil lagði upp bæði mörk Hellas í nágrannaslagnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Emil fagnar marki með Hellas.
Emil fagnar marki með Hellas. vísir/getty
Emil Hallfreðsson lagði upp bæði mörk Hellas Verona í 2-2 jafntefli gegn nágrönnunum í Chievo Verona í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Alberto Paloschi kom Chievo yfir, en Juan Gomez jafnaði á 20. mínútu eftir stoðsendingu frá íslenska landsliðsmanninum.

Emil lagði svo einnig upp annað mark Hellas, en það lagði hann upp fyrir Luca Toni. Sergio Pellisier jafnaði metin í fyrri hálfleik svo af vítapunktinum fyrir Chievo og fleiri urðu mörkin ekki.

Öll fjögur mörkin í fyrri hálfleik, en eftir leikinn er Hellas í fimmtánda sæti með 41 stig. Chievo er í því tólfta með 42 stig. Mikil miðjubarátta í ítalska boltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×