„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir furðu sinni og fullri vanþóknun á ummælum Birgittu Jónsdóttur 8. þingmanns Reykjavíkur í garð Skagfirðinga og Skagafjarðar. Ummæli af þessu tagi lýsa fullu skilningsleysi þingmannsins á stöðu landsbyggðarinnar til viðhalds og uppbyggingar á atvinnu- og mannlífi og ákveðni Skagfirðinga til að standa vörð um þessa grunnþætti í sínu héraði,“ segir í ályktuninni.
Sveitarfélagið segir það með öllu ólíðandi og óverjandi að þingmaður gefi það í skyn að Skagafjörður sé mafíusamfélag sem þrífist á glæpum og glæpatengdri starfsemi. Það sæmi hvorki þingmanni né nokkrum öðrum.
„Er það von okkar Skagfirðinga að þingmaðurinn hefji umræðuna upp úr þeirri lágkúru sem þessi ummæli báru með sér og í þá veru að efla traust og tiltrú almennings á Alþingi, alþingismönnum og störfum þeirra. Er þess krafist að þingmaðurinn biðjist opinberlega afsökunar á ummælum sínum.“
Sjá einnig: KS ekki viðurstyggileg glæpasamtök
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum var einnig ósáttur við ummælin og skrifaði pistil um málið fyrir nokkru.
Taldi hann ummæli Píratans ekki boðleg; sikileyska mafían eru eru viðurstyggileg glæpasamtök en Kaupfélag Skagfirðinga er íslenskt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Ártorgi í Skagafirði. Elliði rekur svo það sem gerir að þessu sé ekki saman að líkja: „Kaupfélag Skagfirðinga er samvinnufélag í dreifðri eign og blönduðum rekstri. Sikileyska mafían stundar morð, mansal, vændi, nauðganir og marga þá hryllilegustu glæpi sem hægt er að hugsa sér.“