Innlent

Vigdís Hauks sakar borgarstjórann um lygar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar og formaður fjárlaganefndar, segir nefndina aldrei hafa óskað eftir skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um nýjan Landspítala, líkt og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fullyrti í Bítinu á dögunum. Sakar hún hann um að fara með fleipur í þessum efnum.

„Fjárlaganefnd hefur aldrei farið fram á að farið yrði yfir útreikninga Hagfræðistofnunar og ég biðst undan því að sitja undir slíkum ósannindum frá borgarstjóra Reykjavíkur – við vitum að hann er kominn í mikil vandræði með rekstur borgarinnar,“ skrifar Vigdís.

„Borgarstjórinn lýgur,“ skrifar Vigdís.
Dagur sagði í viðtalinu að fjárlaganefnd hefði óskað eftir skýrslunni fyrir um einu og hálfu ári síðan. Mikilvægt væri að bíða niðurstaðna áður en lengra yrði haldið í umræðunni um staðsetningu spítalans.

Á Facebook-síðu Samtaka um betri spítala segir að fulltrúar samtakanna hafi fundað með Hagfræðistofnun um málið í gær. Þar hafi komið í ljós um væri að ræða skýrslu sem háskólayfirvöld óskuðu eftir en að fulltrúar Hagfræðistofnunar hefðu tekið sérstaklega fram að ekkert hafi verið komið inn á staðsetningu spítalans við vinnslu skýrslunnar. Samtökin hafi því óskað eftir því við háskólarektor að fá skýrsluna afhenta. „Þetta er önnur skýrslan um nýjan LSH sem samtökin komast á snoðir um og ekki hefur verið birt opinberlega.“

Viðtalið við Dag B. Eggertsson má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.

Dagur borgarstjóri fullyrti í Bítinu á Bylgjunni þann 7. júlí að fjárlaganefnd Alþingis hefði pantað skýrslu um nýjan...

Posted by Samtök um Betri spítala á betri stað on 15. júlí 2015

Tengdar fréttir

Bjarni á móti einkaframkvæmd við fjármögnun nýs spítala

Fjármálaráðherra er mótfallinn því að Landspítalinn fari í einkaframkvæmd eins og með eignatryggðri fjármögnun. Hann segir almennt ekki hafa gefist vel að einkaaðilar byggi tekjumódel sitt á leigugreiðslum ríkisins. Ólíklegt er að nýr spítali verði reistur fyrir eigið fé ríkisins á næstunni.

Forgangsröðun og fjármögnun nýs spítala

Fáir læknar tjáðu sig um vinnuaðstöðu og tækjakost á LSH fyrir verkfall. Fyrst í lok janúar birtist grein í Mbl. eftir Stefán A. Matthíasson lækni, sem sagði að í stað byggingar sjúkrahótels væri fjármunum betur varið til kaupa á tækjum, sem bráðvantar.

Flestir vilja spítala fyrir fé kröfuhafa

Meira en tveir af hverjum þremur svarendum telja rétt að nýta hluta af fé frá kröfuhöfum til þess að byggja nýjan spítala. Varaformaður fjárlaganefndar segir gott að fólk vilji forgangsraða í þágu grunnþjónustunnar og byggja nýjan spítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×