Mirjam Foekja van Twuijver hlaut ellefu ára dóm og Atli Freyr Fjölnisson fimm ára dóm í héraði fyrir aðild sína að fíkniefnamálinu umfangsmikla sem kennt hefur verið við tálbeituaðgerð við Hótel Frón. Refsiramminn í fíkniefnamálum er tólf ár og er umdeilt að burðardýr, sem veitti lögreglu umtalsverða aðstoð við tálbeituaðgerðina, fái svo þungan dóm.
Málflutningur er fyrirhugaður í Hæstarétti þann 27. janúar en Björgvin Jónsson, verjandi konunnar, og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Atla Freys, hafa kallað eftir frekari gögnum í málinu er snúa að tálbeituaðgerðinni.
Athygli vekur að í gögnum málsins, sem verjendur fengu frá ákæruvaldinu áður en málið var tekið til meðferðar í héraði í haust, kemur ekkert fram um að lögreglufulltrúinn, sem nú sætir rannsókn, hafi stýrt eða komið að aðgerðinni. Það gerði hann þó samkvæmt heimildum Vísis.

Hulda María Stefánsdóttir, fulltrúi ákæruvaldsins, vísar til laga um meðferð sakamála, þriðju málsgreinar í 110. grein og telur nægjanlegra gagna hafa verið aflað. Greinin er svo hljóðandi:
Ákærandi aflar sönnunargagna en ákærði getur einnig aflað sönnunargagna telji hann ástæðu til þess.
-Eftir því sem dómari telur nauðsynlegt til að upplýsa mál eða skýra það er honum rétt að beina því til ákæranda að afla gagna um tiltekin atriði þess.
-Ef dómari telur bersýnilegt að atriði, sem aðili vill sanna, skipti ekki máli eða að gagn sé tilgangslaust til sönnunar getur hann meinað aðila um sönnunarfærslu.
Af greininni má ráða að það er á valdi dómara að taka ákvörðun hvort veita eigi aðgang að gögnum eða ekki.

Í gögnum málsins má finna skýrslu undirritaða af Þorbirni Val Jóhannssyni rannsóknarlögreglumanni og einum þeirra sem stýrði aðgerðum á vettvangi. Hann er þó lægra settur en lögreglufulltrúi sá sem til rannsóknar er hjá héraðssaksóknara. Þá komu Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar, og Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn einnig að aðgerðinni sem var á þeirra ábyrgð.
Í skýrslunni sem Þorbjörn skrifar kemur ekkert fram um hvers vegna ákvörðun var tekin að handtaka Atla Frey en ekki fylgja honum eftir eins og lagt hafði verið upp með. Ljóst er að ítarlegri skýrslu eða skýrslur er að finna hjá lögreglu um svo umfangsmikla aðgerð sem ætti að varpa ljósi á hvers vegna sú ákvörðun var tekin að handtaka manninn.
Vilhjálmur segist hvergi nærri hættur í leit sinni að gögnum sem varpi frekara ljósi á málið. Hagsmunir ákærðu séu svo sannarlega í húfi enda ómögulegt að segja til um hvaða áhrif það hefði haft á dóminn hefði handtakan ótímabæra ekki farið fram og stærri aðilar náðst.
„Hvað hefur ákæruvaldið að fela?“ spyr Vilhjálmur.
Hæstiréttur hefur óskað frekari rökstuðnings frá verjendum fyrir því að málinu verði frestað. Vilhjálmur sagði við Vísi fyrr í dag frekari rökstuðningur myndi berast Hæstarétti..