Sautján ára strákur með NBA í sjónmáli var í raun 30 ára gamall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2016 11:30 Jonathon Nicola. Mynd/Youtube
Framtíðin var björt hjá hinum sautján ára Jonathon Nicola sem hafði slegið í gegn með körfuboltaliði Windsor-Essex menntaskólans. En nú hefur komið í ljós að hann er að detta inn á fertugsaldurinn en ekki bílprófsaldurinn. Kanadíska landamæralögreglan hefur nú handtekið umræddan Jonathon Nicola sem hún telur að sé í raun 30 ára gamall en ekki sautján ára eins og hann sagðist vera. Hann spilaði eins og karlmaður meðal drengja og nú vita menn af hverju. Það var ekki ótrúlegur þroski og karlmannlegur styrkur sem hann bjó yfir heldur var hann í raun fullvaxinn karlmaður. Jonathon Nicola er 206 sentímetrar á hæð, 91 kíló á þyngd og notar skó númer 50. Hann var handtekinn fyrir að brjóta gegn reglum innflytjenda í Kanada. Það er hægt að lesa um svindlið hans Jonathon Nicola bæði í staðarblaðinu Windsor Star sem og í New York Daily News. Nicola sótti um skólavist í umræddum skóla í Windsor í Ontario fylki þegar hann kom til Kanada frá Suður-Súdan fyrir sex mánuðum síðan. Hann sagðist í viðtali fyrr í vetur að hann hafi flúið Suður Súdan vegna stríðsins og vesaldarinnar í landinu og hafi ætlað sér að finna sér betra líf í Kanada. Það tók hann sex mánuði að fá námsmanna vegabréfsáritun í Kanada en nú hefur komið í ljós að hann gaf upp rangar upplýsingar þegar hann sótti um. Nicola bjó hjá þjálfaranum Pete Cusumano í gegnum góðgerðasamtökin Canada Homestay sem hjálpa erlendum nemendum að finna heimili. Pete Cusumano var svo ánægður með strákinn að í viðtali í janúar þá talaði hann um að vegna þess að Nicola væri svo góður leikmaður á þessum aldri þá ætti hann möguleika á því að komast í NBA. Hér fyrir neðan má sjá myndband með umræddum Jonathon Nicola.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira