Þórir verður án eins síns besta leikmanns á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. nóvember 2016 10:00 Heidi Löke í leik á Ólympíuleikunum í Ríó. vísir/getty
Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta, bíður erfitt verkefni að fylla skarð línumannsins öfluga, Heidi Löke. Hin 33 ára gamla Löke er með barni og getur því ekki leikið með norska liðinu á EM í Svíþjóð í desember. Barnið er væntanlegt í heiminn í júní á næsta ári. Þetta er annað barn Löke en hún á fyrir níu ára gamlan son. Noregur er ríkjandi heims- og Evrópumeistari en norska liðið hefur átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum árum. Löke hefur átt stóran þátt í frábæru gengi norska liðsins en hún hefur verið í hópi bestu leikmanna heims undanfarin ár. Hún var valin besti leikmaður heims árið 2011 af IHF, Alþjóðahandknattleikssambandinu. „Við í þjálfarateyminu erum ánægð fyrir hönd Heidi og hennar fjölskyldu og óskum þeim alls hins besta,“ er haft eftir Þóri í yfirlýsingu á heimasíðu norska handknattleikssambandsins. „Það er aðeins ein Heidi og hún hefur verið í lykilhlutverki í landsliðinu frá 2008. Þetta verður öðruvísi án hennar.“ EM í Svíþjóð hefst 4. desember og lýkur með úrslitaleik átjánda sama mánaðar. Noregur er með Rússlandi, Rúmeníu og Króatíu í riðli.
Handbolti Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Handbolti Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Handbolti Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA Sport Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Íslenski boltinn Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Fótbolti Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Enski boltinn Fleiri fréttir Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjá meira