Handbolti

Björgvin Páll sá rautt í enn einu tapi Bergischer

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björgvin var rekinn af velli eftir 18 mínútur.
Björgvin var rekinn af velli eftir 18 mínútur. vísir/getty
Það gekk ekki nógu vel hjá Íslendingaliðunum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Björgvin Páll Gústavsson fékk að líta rauða spjaldið þegar Bergischer steinlá, 26-35, fyrir Stuttgart á heimavelli.

Björgvin var rekinn af velli eftir 18 mínútur. Þá var hann búinn að verja eitt skot.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk úr átta skotum fyrir Bergischer sem er í vondum málum á botni deildarinnar.

Rúnar Kárason var ekki á meðal markaskorara þegar Hannover-Burgdorf tapaði fyrir Erlangen á útivelli, 27-26.

Hannover er í 6. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×