Segja „móðursprengjuna“ nú hafa fellt 92 vígamenn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. apríl 2017 22:28 Eyðileggingin vegna sprengjunnar var mikil. Vísir/EPA
Yfir 90 vígamenn ISIS hryðjuverkasamtakanna féllu í loftárás Bandaríkjahers í austurhluta Afganistan, í fyrradag, samkvæmt upplýsingum frá ríkisstjórn Afganistan. Guardian greinir frá. Áður var talið að rúmlega 30 vígamenn hefðu fallið í sprengjuárásinni, sem hefur hlotið mikla athygli, vegna sprengjunnar sem var notuð. Hún hefur jafnan verið kölluð „móðir allra sprengja,“ vegna þess að um er að ræða öflugustu sprengju sem Bandaríkjaher hefur yfir að ráða, utan kjarnorkuvopna. Afganskar öryggissveitir, með liðsinni Bandaríkjamanna, eru enn að reyna að meta eyðilegginguna sem að sprengjan skildi eftir sig, en samkvæmt upplýsingum Mohammad Radmanesh, upplýsingafulltrúa afganska hersins, hafa nú fundist 92 lík. Almennir borgarar í allt að þriggja kílómetra fjarlægð eru sagðir hafa fundið fyrir högginu af völdum sprengjunnar, sem ætlað er að beita gegn neðanjarðargöngum, líkt og þeim sem vígamennirnir héldu til í. Brotnuðu meðal annars rúður í húsum, auk þess sem sprungur mynduðust í veggjum. Bandaríkjaher hefur í auknum mæli beitt loftárásum gegn bæði liðsmönnum ISIS sem og Talíbönum í Afganistan, en ekki er ljóst hvort að viðkomandi sprengju verður beitt aftur.
Tengdar fréttir Eftirköst „móður allra sprengja“ Afgangskar öryggissveitir taka nú þátt í aðgerðum gegn vígamönnum íslamska ríkisins í Achin-umdæmi í Nangarhar-héraði í Afghanistan, þar sem "móður allra sprengja“ var varpað í gær. . 14. apríl 2017 13:26 Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Bauð Pútín að vera „músin“ hans Erlent Fleiri fréttir Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Sjá meira
Eftirköst „móður allra sprengja“ Afgangskar öryggissveitir taka nú þátt í aðgerðum gegn vígamönnum íslamska ríkisins í Achin-umdæmi í Nangarhar-héraði í Afghanistan, þar sem "móður allra sprengja“ var varpað í gær. . 14. apríl 2017 13:26