Íslenski boltinn

Öruggur sigur Gróttu á Leikni F. í Inkasso deildinni

Elías Orri Njarðarson skrifar
Leikmenn Gróttu náðu í þrjú dýrmæt stig í dag
Leikmenn Gróttu náðu í þrjú dýrmæt stig í dag grótta/grottasport.is
Grótta og Leiknir F. mættust á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í dag. Bæði lið voru í tveimur neðstu sætunum í Inkasso deildinni fyrir leikinn í dag.

Gróttumenn komust yfir í leiknum á 26. mínútu þegar að Viktor Smári Segatta skoraði eftir stoðsendingu frá Ásgrími Gunnarssyni.

Pétur Steinn Þorsteinsson jók svo forskotið í 2-0 fyrir heimamenn. Hann var svo aftur á ferðinni á 89. mínútu þegar að hann skoraði annað mark sitt í leiknum og kom Gróttumönnum í 3-0. Fleiri urðu mörkin ekki og dýrmæt 3 stig fyrir Gróttu.

Grótta situr í 11. sæti í Inkasso deildinni með 8 stig og Leiknir í 12. sætinu með 7 stig eftir leikinn í dag.

Úrslitin og markaskorarar eru fengnir af www.urslit.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×