Fótbolti

17 ára leikmaður Liverpool með sigurmark Wales

Íþróttadeild skrifar
HM 2018 fer fram í Rússlandi.
HM 2018 fer fram í Rússlandi. Vísir/Getty
Wales sigraði Austurríki í lokaleik dagsins í D-riðli undankeppni HM í Rússlandi 2018.

Hinn 17 ára Benjamin Woodburn, sem er á mála hjá enska stórliðinu Liverpool, skoraði sigurmark Wales á 74. mínútu leiksins.

Wales situr í þriðja sæti riðilsins með 11 stig þegar þrír leikir eru eftir.

Makedónía fór einnig með 1-0 sigur af hólmi þegar þeir sóttu Ísrael heim.

Goran Pandev skoraði sigurmark Makedóníu á 73. mínútu.

Liðin leika í G-riðli og er lítil von fyrir þau að komast í lokakeppnina, en Makedónar eru 10 stigum á eftir liði Ítalíu sem situr í öðru sætinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×