Álagið varð Löwen að falli | Svona var kvöldið hjá handboltastrákunum okkar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. nóvember 2017 19:45 Alexander skilaði sínu en það dugði ekki til. vísir/getty
Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Füchse Berlin, í kvöld er liðið vann sannfærandi útisigur, 29-37, gegn Minden. Kiel vann aldrei þessu vant leik í kvöld er Lemgo kom í heimsókn. Stórsigur, 29-19, hjá Kiel þar sem Nikola Bilyk og Marko Vujin skoruðu báðir sex mörk fyrir Kiel. Það er búið að vera bilað álag á meisturum Rhein-Neckar Löwen og það kom í bakið á liðinu í kvöld er það tapaði, 29-26, gegn Melsungen. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson fjögur. Flensburg valtaði yfir Hüttenberg, 38-23, þar sem Ragnar Jóhannsson skoraði tvö mörk úr sjö skotum fyrir Hüttenberg. Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir Hannover-Burgdorf er liðið skellti Stuttgart, 27-20. Lið Aðalsteins Reynis Eyjólfssonar, Erlangen, tapaði með sex marka mun, 28-22, fyrir Magdeburg. Füchse er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar en Löwen er í öðru sæti. Kiel er aðeins í sjöunda sæti en Hannover er í fjórða. Erlangen er í sextánda sæti og Hüttenberg því sautjánda. Í sænska boltanum unnu meistarar Kristianstad stórsigur, 39-29, á Skövde. Ólafur Guðmundsson skoraði sex mörk fyrir Kristianstad og Gunnar Steinn Jónsson eitt. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá meisturunum sem eru í toppsæti deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira