Fótbolti

Þremur leikjum í Pepsi-deild karla frestað vegna veðurs

Einar Sigurvinsson skrifar
Baldur Sigurðsson verður í eldlínunni hjá Stjörnunni á miðvikudaginn.
Baldur Sigurðsson verður í eldlínunni hjá Stjörnunni á miðvikudaginn. vísir/daníel
Tveir leikir sem áttu að fara fram í Pepsi-deild karla á morgun hafa verið færðir á miðvikudaginn. Búist er við slæmu veðri annað kvöld og ákváðu liðin því að spila leikina sólarhring seinna en áætlað hafði verið.

Miðvikudaginn 21. maí klukkan 19:15 mun Stjarnan taka á móti Fylki á Samsung-vellinum í Garðabæ. Á sama tíma tekur Breiðablik á móti Víkingi á Kópavogsvelli og Grindavík á móti Val.

Næstu leikir í Pepsi-deild karla:

22.05 KA - Keflavík (19:15)

23.05 Grindavík - Valur (19:15)

23.05 Stjarnan - Fylkir (19:15)

23.05 Breiðablik - Víkingur (19:15)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×