Inter og Torino skildu jöfn Dagur Lárusson skrifar 26. ágúst 2018 20:30 vísir/getty Torino og Inter Milan skildu jöfn í ítölsku deildinni í dag eftir frábæra frammistöðu Torino í seinni hálfleiknum. Inter tapaði fyrir Sassuolo í fyrstu umferðinni um síðustu helgi og gátu því hefnt ófaranna í kvöld gegn Torino sem tapaði fyrir Roma í fyrstu umferðinni. Liðsmenn Inter byrjuðu leikinn af miklum krafti og náði Króatinn Ivan Perisic forystunni fyrir Inter strax á 6. mínútu. Forysta Inter tvöfaldaðist á 32. mínútu þegar Stefan De Vrij skoraði og var staðan 2-0 í hálfleiknum. Liðsmenn Torino mættu tvíelfdir til leiks í seinni hálfleikinn og voru ekki lengi að minnka muninn en það gerði Andrea Belotti á 55. mínútu. Það var síðan Soualiho Meite sem jafnaði metin fyrir Torino á 68. mínútu og þar við sat. Inter fer því ekki vel af stað og er með eitt stig eftir tvær umferðir. Ítalski boltinn