Óboðinn, ölvaður gestur heimsótti heimili í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld og hreiðraði um sig í sófa í stofunni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum.
Húsráðandi var á efri hæð að horfa á sjónvarp þegar hann heyrði umgang á neðri hæðinni. Taldi hann í fyrstu að þar væru heimilisvinir á ferðinni en ákvað svo að athuga málið nánar og fór niður á neðri hæð.
Þar sat hinn óboðni í stofusófanum og lét fara vel um sig. Erfiðlega gekk að ræða við manninn sökum tungumálaörðugleika en hann var fluttur á lögreglustöð þar sem hann gisti um nóttina, að eigin ósk.
Óboðinn og ölvaður hreiðraði um sig í sófanum
Kristín Ólafsdóttir skrifar
