Handbolti

Sigvaldi skoraði þrjú í hádramatískum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigvaldi í landsleik á dögunum
Sigvaldi í landsleik á dögunum Vísir/Daníel
Hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson var í eldlínunni með norska úrvalsdeildarliðinu Elverum þegar liðið fékk Dinamo Búkarest í heimsókn í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

Sigvaldi nýtti þrjú af fjórum skotum sínum og hjálpaði liði sínu að innbyrða sigur eftir hádramatískar lokamínútur.

Rúmenarnir höfðu þriggja marka forystu í leikhléi, 12-15 og voru einu marki yfir þegar hálf mínúta var til leiksloka, 27-28. Þeim tókst hins vegar að kasta forystunni frá sér á síðustu þrjátíu sekúndunum.

Elverum jafnaði metin þegar fimmtán sekúndur voru eftir og Sigvaldi stal svo boltanum í lokasókn gestanna. Í kjölfarið var brotið á Sigvalda og vítakast dæmt. Simen Pettersen fór á vítalínuna og tryggði Elverum sætan sigur, 29-28.

Elverum fór upp fyrir Dinamo með sigrinum og situr nú í 3.sæti D-riðils en sex lið eru í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×