„Hún er tveimur metrum hærri og þremur metrum breiðari en ég“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2018 15:30 Crina-Elena Pintea, til vinstri, er engin smásmíði. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta á ekki mikla möguleika á því að spila um verðlaun á EM í Frakklandi eftir að liðið steinlá á móti Rúmenum í gær. Rúmenar fara með fullt hús inn í milliriðill en Þórir Hergeirssonar og norsku stelpurnar mæta þar stigalausar. Rúmenski línumaðurinn Crina-Elena Pintea skapaði mikinn usla í norsku vörninni en hún er 192 sentímetrar á hæð og 85 kíló. Norsku stelpurnar eru mun lágvaxnari og léttari og áttu fá svör við rúmenska risanum. Crina-Elena Pintea skoraði þrjú mörk og fiskaði fjögur víti en rúmensku skytturnar fengu líka mikið pláss þökk sé henni. „Þær voru betri en við í öllu. Pintea er tveimur metrum hærri og þremur metrum breiðari en ég. Við reyndum líka nokkur skítabrögð en við gátum ekki stoppað þær. Það var okkur ómögulegt. Við reyndum að ýta Pintea áður en hún fékk boltann en það dugði ekki heldur,“ sagði Veronica Kristiansen við Dagbladet. Þórir Hergeirsson talaði líka um rúmenska línumanninn eftir leik. „Línumaðurinn þeirra er stór og sterk. Við gætum hinsvegar stoppað hana á góðum degi. Það er ekki oft sem við mætum slíkum leikmanni og við leystum þetta ekki nógu vel,“ sagði Þórir við Dagbladet. Hin 22 ára gamla Julia Dumanska í rúmenska markinu átti líka stórleik og var valin maður leiksins.Stig liðanna í milliriðli Norðmanna: 1. Rúmenía 4 stig (+13 í markatölu) 2. Holland 4 stig (+4 í markatölu) 3. Ungverjaland 2 stig (+3 í markatölu) 4. Þýskaland 2 stig (-4 í markatölu) 5. Spánn 0 stig (-7 í markatölu) 6. Noregur 0 stig (-9 í markatölu)
Handbolti Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Fótbolti Bruno til bjargar Enski boltinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Fleiri fréttir Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Sjá meira