Íslenska 20 ára landslið karla í körfubolta vann frábæran 37 stiga sigur á Ungverjum, 78-41, í B-deild Evrópukeppninnar í Portúgal í dag. Íslensku strákarnir áttu frábæran dag og rúlluðu ungverska liðinu upp í leik sem okkar menn urðu að vinna stórt til að komast í átta liða úrslitin.
Nafnarnir úr Haukum, Hilmar Smári Henningsson og Hilmar Pétursson, voru allt í öllu í leik íslenska liðsins. Hilmar Smári var stigahæstur með 25 stig og 12 fráköst en Hilmar bætti við 16 stigum, 9 fráköstum og 6 stoðsendingum. Bjarni Guðmann Jónsson var með 13 stig og 9 fráköst.
Ágúst S. Björgvinsson, þjálfari íslenska liðsins, stillti spennustigið heldur betur rétt í dag því liðið spilaði sinn langbesta leik á mótinu þegar mest var undir.
Þetta var fjórði og síðasti leikur liðanna í riðlakeppninni. Íslenska liðið hafði unnið Íra en tapað á móti Rússum og Hvít-Rússum. Þar sem Ungverjar unnu Hvít-Rússa skipti miklu máli að vinna þennan leik nógu stórt ætluðu strákarnir að ná sætinu í átta liða úrslitunum.
Ungverjar voru búnir að vinna tvo af fyrstu þremur leikjum sínum en þeir áttu engin svör á móti baráttuglöðum og vel spilandi íslenskum strákum.
Íslenska liðið tapaði með fimm stigum á móti Hvít-Rússum sem töpuðu síðan með tólf stigum á móti Ungverjum. Þessi 37 stiga sigur þýðir að Ísland verður efst af þessum þremur þjóðum og tryggir sér sæti í átta liða úrslitum svo framarlega sem Hvít-Rússar taka ekki upp á því að vinna Rússa á eftir.
Rússar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína með talsverðum yfirburðum og ættu að öllu eðlilegu að klára leikinn á móti Hvíta Rússlandi seinna í kvöld. Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í átta liða úrslit en hin tvö liðin keppa um níunda til sextánda sæti.
Íslensku strákarnir töku öll völd í öðrum leikhlutanum sem íslenska liðið vann 21-9 og komst þar með þrettán stigum stigum yfir fyrir hálfleik, 33-20.
Frábær vörn íslenska liðsins hélt Ungverjum í 20 stigum og 30 prósent skotnýtingu í fyrri hálfleik og íslenska liðið vann líka fráköstin 27-17 í hálfleiknum.
Hilmar Smári Henningsson skoraði 11 stig í fyrri hálfleiknum og svo fjögur stig til viðbótar á upphafsmínútum seinni hálfleiks þegar íslenska liðið komst átján stigum yfir 41-23.
Ungverjarnir átti engin svör og munurinn var kominn up í 23 stig, 48-25, þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhlutanum.
Íslenska liðið vann þriðja leikhlutann á endanum, 22-9 og var því 55-29 forystu fyrir lokaleikhlutann. Hilmar Smári endaði leikhlutann á þristi og var kominn með tuttugu stig eða aðeins níu stigum minna en allt ungverska liðið.
Íslensku strákarnir voru þá einnig búnir að vinna síðustu tuttugu mínúturnar í leiknum 43-18. Fjórði og síðasti leikhlutinn var aðeins formsatriði en strákarnir gáfu ekkert eftir og unnu hann 23-21 og þar með leikinn með 37 stiga mun.
Stig íslenska liðsins í leiknum:
Hilmar Smári Henningsson 25 (12 fráköst)
Hilmar Pétursson 16 (9 fráköst, 6 stoðsendingar)
Bjarni Guðmann Jónsson 13 (9 fráköst)
Arnór Sveinsson 8
Orri Hilmarsson 5
Hlynur Logi Ingólfsson 4
Egill Agnar Októsson 4
Gabríel Sindri Möller 3
