Fjórtán starfsmönnum var sagt upp hjá fyrirtækinu ÍSAM um síðustu mánaðamót. Þetta staðfestir Hermann Stefánsson forstjóri ÍSAM í svari við fyrirspurn Vísis. Starfsmennirnir unnu í mörgum deildum fyrirtækisins, svo sem við framleiðslu, sölu, dreifingu og á skrifstofu.
Hermann segir uppsagnirnar lið í því að snúa taprekstri undanfarinna ára við. Unnið sé að breyttu skipulagi fyrirtækisins með það að leiðarljósi að „draga úr kostnaði, skerpa á fókus í rekstrinum og gera ÍSAM betur í stakk búið að starfa á krefjandi samkeppnismarkaði.“
Sjá einnig: Segir ógeðfellt að boða verðhækkun í miðri atkvæðagreiðslu
Ein hagræðingarleiðin felist til að mynda í því að flytja stóran hluta starfseminnar á einn stað á Korputorgi en höfuðstöðvar ÍSAM eru að Tunguhálsi 11. Alls starfa um 400 manns hjá ÍSAM, sem á Mylluna, Ora, Kexsmiðjuna og Frón.
Í apríl síðastliðnum sætti ÍSAM mikilli gagnrýni af hálfu forkólfa innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að fyrirtækið boðaði verðhækkanir, yrðu kjarasamningar samþykktir. Í kjölfarið var hvatt til sniðgöngu á vörum fyrirtækisins.
Hermann Stefánsson forstjóri tjáði Vísi á sínum tíma að tölvupósturinn hefði vissulega verið óheppilega tímasettur. Hann sagði þó að fyrirtækinu væri nauðugur kostur að hækka verð á vörum sínum í ljósi samkeppnisstöðu íslensks framleiðsluiðnaðar.
Í júní síðastliðnum var svo greint frá því að hluthafar hefðu lagt ÍSAM til 800 milljónir króna í fyrra samhliða 662 milljóna króna tapi fyrir tekjuskatt. Tap fyrirtækisins jókst um 310 milljónir króna á milli ára.
Fjórtán starfsmönnum sagt upp hjá ÍSAM

Tengdar fréttir

Forstjóri ÍSAM telur hækkanirnar hóflegar og ekki tilefni til sniðgöngu
Forstjóri ÍSAM segir tölvupóstinn, sem fyrirtækið sendi viðskiptavinum sínum til að boða verðhækkanir yrðu kjarasamningar samþykktir, hafa verið óheppilega tímasettan.

Hefur áhyggjur af hótunum um verðhækkanir ÍSAM
Framkvæmdastjóri Bónuss segir lágverðsverslunina viðkvæma fyrir tilkynningum um verðhækkanir eins og þá sem forstjóri ÍSAM sendi frá sér á dögunum.

Segir ógeðfellt að boða verðhækkun í miðri atkvæðagreiðslu
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skorar á fyrirtæki að sýna samstöðu.

Segir lágvöruverslanir spyrna á móti verðhækkunum
Verslunin Krónan hefur fengið 70 tilkynningar um verðhækkanir á vörum frá því síðasta haust. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ýmsar ástæður liggja þar að baki bæði gengisbreytingar og launahækkanir.

Lögðu ÍSAM til 800 milljónir
Hluthafar lögðu ÍSAM til 800 milljónir króna í fyrra samhliða 662 milljóna króna tapi fyrir tekjuskatt. Tapið jókst um 310 milljónir króna á milli ára.