Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, getur því keypt nýja leikmenn til félagsins í janúarglugganum.
BREAKING: The Court of Arbitration for Sport has halved Chelsea’s transfer ban.
Frank Lampard is free to sign players in January. pic.twitter.com/1R1LYuZp8t
— ESPN FC (@ESPNFC) December 6, 2019
Frank Lampard tók við Chelsea í sumar en gat ekki fengið nýja leikmenn til liðsins þar sem félagið var í félagsskiptabanni hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu.
Bannið átti að ná til tveggja félagskiptaglugga eða sumarið 2019 og svo janúar 2020.
Lampard fékk leikmenn aftur til baka úr láni og margir þeirra hafa farið á kostum það sem af er tímabilsins. Lampard hefur gefið ungum leikmönnum tækifæri í vetur og fengið lof fyrir.
Chelsea áfrýjaði jafnframt banninu til CAS, Alþjóða Íþróttadómstólsins, eftir að áfrýjunardómstóll FIFA vísaði áfrýjun Chelsea frá.
Niðurstaðan barst síðan í dag og það voru góðar fréttir fyrir Chelsea.
Chelsea hefur ávallt verið öflugt á félagskiptamarkaðnum og það verður því athyglisvert að sjá hvaða leikmenn Frank Lampard reynir að kaupa í næsta mánuði.