Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hefur ekki í hyggju að kynna „lokatilboð“ Icelandair til félagsins fyrir félagsmönnum sínum. Á fundum flugfreyja í dag mun orkan fara í að ræða tilboð flugfreyja til flugfélagsins.
Óhætt er að segja að Hilton Nordica-hótelið á Suðurlandsbraut verði lagt undir Icelandair í dag. Flugfreyjur hittast á nokkrum fundum yfir daginn til að allar komist að vegna sóttvarnatakmarkana. Klukkan fjögur er svo fyrirhugaður hluthafafundur flugfélagsins.

Talsverður hiti færðist í viðræður FFÍ og Icelandair í gærkvöldi eftir að Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair sendi starfsfólki bréf, þar sem hann útlistaði síðasta tilboð sem félagið lagði fram í kjaradeilunni. Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, sagði í yfirlýsingu í kjölfarið að með bréfinu bryti Bogi lög um stéttarfélög og vinnudeilur.
Ekki hefur farið fram formlegur samningafundur í deilunni síðan í byrjun vikunnar en þá hafnaði samninganefnd FFÍ áðurnefndu „lokatilboði“ Icelandair.
Vildi geta undirbúið sig fyrir fundinn
Flugfreyjur ræða málið í hópi Flugfreyjufélagsins á Facebook. Þar spurði ein flugfreyja hvort ekki væri mögulegt að samninganefndin sendi flugfreyjunum tilboðið frá Icelandair svo þær gæti undirbúið sig betur fyrir fundinn í dag. Sett sig inn í hvað væri í gangi.
„Mig langar að vita hvað það er sem við erum að sýna samstöðu um,“ sagði Jarþrúður Guðnadóttir, flugfreyja og formaður Flugfreyjukórsins.

Sigrún Jónsdóttir svaraði beiðninni neitandi fyrir hönd samninganefndarinnar. Alla jafna eru tilboð í samningaviðræðum ekki send félagsmönnum nema þegar þau hafa verið samþykkt og borin undir félaga í atkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hluti flugfreyja mikinn áhuga á að vita í hverju lokatilboðið fólst.
Hvetur flugfreyjur til samstöðu
Sigrún skrifaði hvatningarpóst til flugfreyja í hópnum, sagðist hlakka til að sjá þær og hvatti til að standa keikar.
„Eins og ég tiltók í gær er það ennþá ein af kröfum fyrirtækisins að staða B ff yrði lögð niður, kröfur um aukið vinnuframlag er ekki ný krafa og verður ekki tengd Covid19, ekki að öllu leit, þar sem að þessi krafa var upp á borði frá viðsemjendum okkar fyrir ári síðan,“ sagði Sigrún.
„Frá því í janúar 2019 og til dagsins í dag hefur sú krafa tekið breytingum...allt frá því að vera krafa um aukningu úr 65 í 78 fyrir sömu laun og svo núna upp á síðkastið var það 99-100 flugstundir á alla en launatrygging samt 70-78 stundir. Þessu hefur verið hafnað á ýmsa vegu.“

Ekkert þeirra sem sitji í samninganefndinni sé með lokuð augun gagnvart því grafalvarlega ástandi sem uppi sé í öllum heiminum.
„Við hins vegar ætlum ekki að taka þegjandi við krföum sem eru rúmlega ársgamlar sem hafa bara aukist undir þeim formerkjum að núna sé ástandið grafalvarlegt. Okkur ber skylda til að standa vörð um það sem hefur áunnist, meta breyttar aðstæður og velja og hafna hvað það er sem má breyta og eða taka út úr kjarasamningi. Við gerum það með galopin augun svo það sé klárt!“
Ekki upplifað annað eins síðan 1995
Sigrún minnir á uppáhaldsorðið sitt, samstaða. Hún hafi ekki á sínum 34 árum í starfinu upplifað annað eins nema ef vera skyldi þriggja daga verkfall árið 1995 þar sem flugfreyjur hafi staðið saman allar sem ein.
„Við förum í gegnum þetta, ég hef fulla trú á því, samstaðan og styrkurinn sem okkur berst frá öðrum stéttarfélögum og ekki síst samtökum, sem við erum með aðild að erlendis (NTF, ETF) styrkja mig í þeirri trú.“
Flugvirkjar hafa skrifað undir nýjan kjarasamning við Icelandair. Atkvæðagreiðslur flugmanna um nýjan kjarasamning lýkur í dag.
Uppfært klukkan 15: Flugfreyjur sem fréttastofa hefur rætt við segja að spurningum um hið svokallaða lokatilboð Icelandair hafi verið svarað á fundinum í dag. Mikil samstaða sé meðal flugfreyja.