Innlent

Lög­reglan hefur á­hyggjur af of­beldis­menningu meðal ís­lenskra ung­menna

Sylvía Hall skrifar
Lögreglan biðlar til foreldra að vera vakandi fyrir ferðum ungmenna sinna og hvað þau séu að gera yfir sumartímann. Áhættuhegðun unglinga eigi það til að aukast yfir sumarið.
Lögreglan biðlar til foreldra að vera vakandi fyrir ferðum ungmenna sinna og hvað þau séu að gera yfir sumartímann. Áhættuhegðun unglinga eigi það til að aukast yfir sumarið. Vísir/Vilhelm

Lögreglan hvetur foreldra og forráðamenn til þess að vera vakandi fyrir áhættuhegðun á meðal unglinga, þá sérstaklega yfir sumartímann. Það hafi sannað sig að sumarið sé áhættutími fyrir ungmenni þar sem margir unglingar prófi að neyta áfengis og vímuefna.

Þetta kemur fram í orðsendingu til foreldra barna á unglingastigi þar sem þau eru beðin um að fylgjast með ferðum barnanna og halda vel utan um þau. Lögreglan hafi talsverðar áhyggjur af ofbeldismenningu sem sé útbreidd meðal ungmenna á Íslandi.

„Slagsmál ungmenna er áhættuhegðun sem við hjá lögreglunni höfum töluverðar áhyggjur af enda hafa rannsóknir sýnt að ofbeldismenning er útbreidd meðal ungmenna á Íslandi. Síðustu misseri hafa sprottið upp síður á samfélagsmiðlum sem sýna ungmenni jafnvel í grófum slagsmálum á meðan aðrir standa aðgerðarlausir í kring eða hvetja þau til dáða. Þátttakendur í þessu eru bæði strákar og stelpur, oftast unglingar á grunnskólaaldri,“ segir í orðsendingunni.

Gæti bjargað mannslífi að láta lögreglu vita

Slagsmálin séu stórhættuleg þar sem mikið sé um endurtekin högg og spörk í höfuð og búk andstæðingsins sem skapi augljóslega mikla hættu. Dæmi séu um að slíkar árásir hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, bæði fyrir þolendur og gerendur.

„Ræðið við unglinginn ykkar um þessi mál. Ræðið við þau um þá ábyrgð sem fylgir því að taka þátt í svona atburðum og hættuna sem því fylgir. Ræðið þá ábyrgð að hafa jafnvel bara verið á staðnum sem áhorfandi ef eitthvað alvarlegt myndi gerast. Hvetjið þau til að taka alls ekki þátt í slagsmálum, fylgja ekki ofbeldissíðum, horfa ekki á slagsmálamyndbönd á samfélagsmiðlum og alls ekki taka þau upp eða dreifa þeim.“

Þá bendir lögreglan fólki á að hafa samband við lögreglu í síma 112 ef þau frétta af slíkum slagsmálum. Sé það viðstatt sé best að ganga í burtu og setja sig í samband við lögreglu, þar sem slíkt gæti jafnvel bjargað mannslífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×