Innlent

Maður sem sendi nektarmyndir af fyrrverandi í 60 daga fangelsi

Andri Eysteinsson skrifar
Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands.
Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands. Vísir/Vilhelm

Landsréttur ákvarðaði í dag að dómur yfir manni, sem sekur er um að hafa sent nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni til vinkonu hennar, standi óraskaður.

Dómur féll í málinu fyrir Héraðsdómi Vesturlands 29. maí 2019 og var ákærði þá sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi og dæmdur til 60 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 250.000 króna til brotaþola.

Maðurinn hafði játað að hafa sent skilaboð sem innihéldu þrjár nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni til vinkonu hennar í mars 2017 en sambandi þeirra hafði lokið árið áður.

Ákærði sagðist hafa sent myndirnar til vinkonunnar til þess að freista þess að fá frið frá vinkonum fyrrverandi kærustu sinnar en ákærði sagði vinkonurnar hafa ráðist á sig í tvígang eftir sambandsslitin.

„Kvaðst hann telja að umræddar árásir á hann hefðu verið að undirlagi brotaþola, þótt hann gæti ekkert um það sannað. Eftir þetta hefði hann verið í miklu uppnámi og verið hræddur um að hann fengi ekki frið. Hefði hann því sent þessar myndir til B og látið fylgja að hann vildi að þær létu hann í friði,“ segir í dómnum sem má lesa í heild sinni hér.

Í dómi landsréttar kom fram að myndirnar sem um ræðir hafi kærastan fyrrverandi sent ákærða í trúnaði á meðan að á sambandi þeirra stóð. Við sambandsslitin hafi þau komið sér saman um að myndunum yrði eytt.

Í dómi segir að „óumdeilt sé að háttsemi ákærða var í heimildarleysi brotaþola og var hún til þess fallin að særa blygðunarsemi hennar.“ Því hafi áfrýjaði dómurinn verið staðfestur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×