Inter í næstefsta sæti eftir stórsigur 16. júlí 2020 21:35 Alexis Sánchez skoraði og lagði upp fyrir Inter í kvöld. VÍSIR/GETTY Inter vann í kvöld stórsigur á SPAL á útivelli, 4-0, og kom sér upp í 2. sæti ítölsku A-deildarinnar í fótbolta. Antonio Candreva kom Inter yfir seint í fyrri hálfleik eftir sendingu Alexis Sánchez. Cristiano Biraghi, Sánchez og Roberto Gagliardini skoruðu svo í seinni hálfleiknum. Inter er með 71 stig, sex stigum á eftir toppliði Juventus þegar fimm umferðir eru eftir, og stigi á undan Atalanta. SPAL er á botninum með aðeins 19 stig. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti