Sheffield United fékk Bournemouth í heimsókn í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Gestirnir frá Bournemouth hafa verið að koma til í leik sínum að undanförnu og Callum Wilson kom þeim í forystu á 13.mínútu.
Þeir héldu forystunni þar til í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Billy Sharp jafnaði metin fyrir heimamenn af harðfylgi eftir mikinn darraðadans í vítateig Bournemouth.
John Lundstram kom inn af varamannabekk Sheffield United á 61.mínútu og hann reyndist hetja heimamanna því hann skoraði sigurmark leiksins á 84.mínútu eftir undirbúning annars varamanns, Lys Mousset.
Sheffield United lyfti sér með sigrinum upp í 5.sæti deildarinnar en Bournemouth situr enn í 16.sæti.

