Erlent

Hvetur mannkynið til að láta af „stríði gegn náttúrunni“

Kjartan Kjartansson skrifar
Maður á róðrarbretti rær fram hjá skála sem fór á kaf í flóði í Yangtze-fljóti í Wuhan í Kína í júlí. Vaxandi flóð eru á meðal afleiðinga loftslagsbreytinga af völdum manna.
Maður á róðrarbretti rær fram hjá skála sem fór á kaf í flóði í Yangtze-fljóti í Wuhan í Kína í júlí. Vaxandi flóð eru á meðal afleiðinga loftslagsbreytinga af völdum manna. AP/Chinatopix

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti mannkynið og þjóðir heims til þess að láta af „stríði sínu gegn náttúrunni“ og stefna að kolefnishlutleysi til þess að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga í dag.

Tvær stórar alþjóðlegar skýrslur um ástand og horfur í loftslagsmálum voru birtar í dag. Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) segir að árið 2020 verði á meðal þriggja hlýjustu ára frá upphafi mælinga og áratugurinn sem nú er að líða verði sá hlýjasti frá upphafi. Líkurnar á að hlýnunin nái 1,5°C miðað við tímabilið fyrir iðnbyltingu, metnaðarfyllra markmið Parísarsáttmálans, á næstu fjórum árum eru taldar einn á móti fimm.

Þá sögðu Alþjóðanáttúruverndarsamtökin (IUCN) að sextán stöðum á heimsminjaskrá UNESCO, menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, hafi hrakað frá síðustu skýrslu þeirra fyrir þremur árum. Loftslagsbreytingar af völdum manna auki á skaðann á stöðum eins og Kóralrifinu mikla við Ástralíu.

„Ástand plánetunnar er brotið. Mannkynið háir stríð gegn náttúrunni. Þetta er sjálfsmorð,“ sagði Antonio Guterres, framkvæmdastjóri SÞ, í ræðu í dag.

Varaði hann við því að hamfaraeldar, flóð og fellibyljir væru nú nær daglegt brauð eins og lýst er í skýrslu WMO.

Standa nærri brún loftslagshörmunga

Fimm ár eru frá því að þjóðir heims skrifuðu undir Parísarsamkomulagið. Markmið þess er að ríki heims dragi úr losun á gróðurhúsalofttegundum nægilega mikið og hratt til að koma í veg fyrir að hlýnun nái 2°C á þessari öld og helst 1,5°C ef nokkur kostur er á því.

Guterres sagðist vonast til þess að loforð fleiri en hundrað ríkja um að þau nái kolefnishlutleysi fyrir miðja þessa öld beri árangur. Skýrslurnar sem voru birtar í dag sýni hversu nálægt mannkynið standi loftslagshörmungum.

„Ég trúi því að árið 2021 en ný tegund hlaupárs, ár framhlaups í átt að kolefnishlutleysi,“ sagði portúgalski framkvæmdastjórinn.

Hvatti hann ríkisstjórnir heims til þess að hætta að niðurgreiða og fjármagna jarðefnaeldsneyti og ríkari þjóðir um að standa við loforð um að styrkja þau snauðari fjárhagslega til að þau geti dregið úr losun og aðlagast breyttu loftslagi.

Belchatow í Póllandi, stærsta brúnkolaorkuver Evrópu. Bruni manna á jarðefnaeldsneyti eins og kolum, olíu og gasi er helsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni.AP/Czarek Sokolowski

Öfug stefna í jarðefnaeldsneytisframleiðslu

Í annarri skýrslu frá vísindamönnum sem greina áhrif loftslagsaðgerða sem var einnig birt í dag kom fram að núverandi loforð sem ríki hafa sett fram gætu takmarkað hlýnun við 2,6°C og jafnvel 2,1°C standi þau við þau.

Til þess að ná markmiðinu um 1,5°C hlýnun að hámarki segir Climate Action Tracker-hópurinn að skera þurfi niður framleiðslu á kolum, olíu og gasi um 6% á hverju árið fram til 2030. Þvert á móti benda áform átta þeirra landa sem eru umsvifamest í jarðefnaeldsneytisvinnslu til þess að framleiðslan aukist um 2% á ári.

Hópurinn bendir á að G20-ríkin svonefndu hafi fram til þessa heitið meira fjármagni til að styðja jarðefnaeldsneytisiðnaðinn en til að þróa endurnýjanlega orkugjafa til að leysa hann af hólmi.

„Við sjáum að í stað þess að ríkisstjórnir leyfi þessum jarðefnaeldsneytisverkefnum að deyja drottni sínum reyna þær að vekja þau upp frá dauðum,“ segir Ivetta Gerasimtsjúk, einn höfunda skýrslunnar, við AP-fréttastofuna.

Kóralrifið mikla við strendur Ástralíu liggur undir skemmdum vegna hlýnunar og súrnunar sjávar.AP/Randy Bergman

Loftslagsbreytingar helsta ógnin við náttúruheimsminjar

Aðeins átta staðir á náttúruminjaskrá UNESCO eru taldir betur staddir nú en fyrir þremur árum í skýrslu IUCN en sextán hefur hnignað. Af 252 stöðum á heimsminjaskránni eru 83 nú taldir í hættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga, bráðnunar jöklar, flóða, elda og þurrka.

Um 63% staðanna eru nú í flokknum „góður“ eða „góður en með áhyggjuefnum“. Hátt í þriðjungur er nú í flokknum „verulegar áhyggjur“ og 7% í neyðarflokki.

Nú telur stofnun loftslagsbreytingar af völdum manna í fyrsta skipti stærri ógn við náttúruminjarnar en ágengar aðkomutegundir.

Kóralrifið mikla, eitt mikilvægasta vistkerfið á jörðinni, er nú talið í mikilli hættu, eitt fjögurra staða í Ástralíu. Hlýnun og súrnun sjávar sem hvoru tveggja stafar af losun manna á gróðurhúsalofttegundum ógna rifinu.

Verndaðar eyjar í Mexíkóflóa er nú taldar í neyð. Garanojay-þjóðgarðurinn á Spáni, Ólympíuþjóðgarðurinn í Bandaríkjunum og verndarsvæði konungsfiðrilda í Mexíkó eru á meðal svæða sem nú eru skilgreind í „mikilli hættu“.


Tengdar fréttir

Mesta eyðing regn­skóga í Brasilíu frá 2008

Eyðing regnskóganna í Brasilíu á þessu ári er meiri en hún hefur verið frá árinu 2008. Alls hafa rúmir 11 þúsund ferkílómetrar verið ruddir frá ágúst 2019 og fram í júlí á þessu ári og er það 9,5 prósenta aukning frá fyrra ári.

Haf­ís við Síberíu mánuði á eftir á­ætlun eftir mikla sumar­hita

Aldrei áður hefur Norður-Íshafið við strendur Síberíu lagt eins seint og í haust frá því að gervihnattamælingar hófust fyrir meira en fjörutíu árum. Íslenskur veðurfræðingur rekur ísleysið til mikilla sumarhita og bráðnunar íss við Síberíu í sumar.

Faraldurinn stöðvar ekki loftslagsbreytingar

Losun gróðurhúsalofttegunda stefnir í sama horf og áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn hóf innreið sína fyrr á þessu ári þrátt fyrir metsamdrátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×