Innlent

Íbúinn útskrifaður af slysadeild

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Eldur kom upp í einbýlishúsi í Kaldaseli Reykjavíkur
Eldur kom upp í einbýlishúsi í Kaldaseli Reykjavíkur Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Altjón varð þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Kaldasel snemma í morgun. Varðstjóri telur að eldurinn hafi verið búinn að malla lengi því efri hluti hússins hafi verið nánast alelda. Einn íbúi var fluttur á slysadeild með reykeitrun. Hann hefur verið útskrifaður.

Allt tiltækt slökkvilið á höfðuborgarsvæðinu var kallað út á sjöundatímanum í morgun að Kaldaseli í Seljahverfi í Breiðholti þar sem eldur kom upp í einbýlishúsi. Íbúa í húsinu tókst að komast út og var á leið á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun þegar slökkvilið kom á vettvang. Hann var útskrifaður af slysadeildinni í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Árni Ómar Árnason varðstjóri í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var með þeim fyrstu á vettvang.

„Við vorum komin á vettvang  um um 6:40.  Þetta leit ekki vel það logaði hér út um stafn og út um gluggann hér að vestanverðu. Eldurinn var búinn að ná sér vel á strik, það voru allar rúður farnar á efri hæðinni og eldurinn stóð hérna langt út fyrir húsið. Þetta var gríðarlega mikið bál,“ segir Árni. 

Svipmyndir af vettvangi í morgun má sjá að neðan.

Slökkvilið þurfti að rjúfa þakið á nokkrum stöðum og voru reykkafarar að störfum inni í húsinu í morgun.

„Það var svo mikið bál þarna að innanverðu þannig að við þurftum að rjúfa þakið til að komast að eldinum,“ segir Árni.

Hann segir gríðarlegt tjón á húsinu. 

„Þetta er altjón,“ segir Árni.

 Slökkvilið lauk störfum á vettvangi um ellefu leitið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu tók við. Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri þar segir rannsókn-og tæknideild nú á svæðinu. Ekki sé á þessu stigi hægt að greina frá eldsupptökum.


Tengdar fréttir

Hafa náð tökum á eldinum en íbúar áfram hvattir til að loka gluggum

Íbúar í Mosfellsbæ eru enn hvattir til að loka gluggum vegna mengunar sem stafar frá ruslahaugi sem kvikna í árla morguns. Eldurinn náði á tímabili yfir heilmikil yfirborð ruslahaugs í Álfsnesi en slökkviliðsmaður á vettvangi segir að búið sé að ná tökum á eldinum.

„Húsið var í rauninni alelda þegar við komum“

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir nú útkalli í Seljahverfi í Breiðholti þar sem einbýlishús í Kaldaseli varð alelda í morgun. Altjón virðist hafa orðið í brunanum. Um er að ræða 240 fermetra einbýlishús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×