Maður sem sendi RÚV sprengjuhótun handtekinn Kjartan Kjartansson skrifar 8. maí 2021 07:12 Samkvæmt hótuninni átti sprengja að springa utan við Útvarpshúsið í gærkvöldi en hún reyndist innantóm. Vísir/Vilhelm Ekkert óeðlilegt fannst í Útvarpshúsinu eftir að maður hringdi inn sprengjuhótun til Ríkisútvarpsins í gærkvöldi. Sá sem hringdi inn hótunina var handtekinn seinna um kvöldið.
Starfsmaður RÚV tók við símtali klukkan 19:00 um að sprengja ætti að springa utan við Útvarpshúsið seinna um kvöldið í gær, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla fylgdist með svæðinu og leitaði en ekkert óeðlilegt fannst. Á svæði lögreglustöðvar þrjú fyrir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes barst tilkynning um að ekið hefði verið á barn á reiðhjóli í gær. Barnið er sagt talið lítið slasað en farið var með það á slysadeild. Lögregla ræddi við ökumanninn og er málið sagt í rannsókn. Í Hafnarfirði gerði lögregla upptæka ræktun á kannabisplöntum. Einn var handtekinn og yfirheyrður en honum sleppt að því loknu. Mikið var um útköll vegna hávaða og ölvunar í gærkvöldi og nótt auk þess sem lögregla hafði afskipti af ellefu ökumönnum sem voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í póstnúmeri 104 var tilkynnt um líkamsárás en gerandi var farinn af vettvangi þegar lögreglumenn bar að garði. Lögregla telur að fórnarlambið hafi ekki orðið fyrir alvarlegum áverkum.
Lögreglumál Ríkisútvarpið Reykjavík Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Sjá meira