Innlent

Gerðu hlé vegna yfirliðs spyrils

Árni Sæberg skrifar
Sævar Helgi hljóp í skarðið fyrir Kristjönu.
Sævar Helgi hljóp í skarðið fyrir Kristjönu. RÚV

Skipta þurfti yfir í auglýsingar í miðri Gettu betur keppni kvöldsins þar sem Kristjana Arnarsdóttir spyrill féll í yfirlið.

„Ég verð að fá að setjast aðeins niður, afsakið þetta. Er hægt að gera smá hlé?“ sagði Kristjana á meðan dómarar réðu ráðum sínum eftir hraðaspurningar.

Í frétt RÚV segir að sex mínútna hlé hafi þá verið gert á útsendingu á meðan hlúð var að Kristjönu.

Sævar Helgi Bragason dómari hljóp í skarðið fyrir Kristjönu og tilkynnti að liðið hefði yfir hana en að hún væri heil heilsu. Hann benti réttilega á að allt geti gerst í beinni sjónvarpsútsendingu.

Í frétt RÚV segir að Kristjana hafi leitað á bráðamóttöku til skoðunar en að henni hafi liðið vel miðað við aðstæður.

Kristjana greindi frá því í byrjun janúar að þau Haraldur Franklín Magnús ættu von á sínu fyrsta barni.

Mikið álag á starfsfólki

Anna Fríða Gísladóttir, yfirmaður stafrænnar markaðssetningar hjá BIOEFFECT og vinkona Kristjönu, sagði á Twittersíðu sinni eftir atvikið að RÚV ætti að taka ábyrgð og huga að álagi á starfsfólk sitt og að önnur eins atvik hafi komið upp áður. 

Þórhildur Þorkelsdóttir, fyrrverandi fréttamaður á RÚV virðist taka undir með Önnu Fríðu en hún endurtísti færslu hennar.

Fyrir nánast sléttum tíu árum kom álíka atvik upp þegar leið yfir Guðrúnu Dís Emilsdóttur við tökur á Gettu betur.

Greint var frá því í dag að Gunna Dís hefur snúið aftur á Ríkisútvarpið á ný eftir að hafa kvatt vinnustaðinn 2019 og flutt til Húsavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×