Gáfu börnum með einhverfu Lúllu Elísabet Hanna skrifar 1. júlí 2022 16:01 Lúlla er mjúk tuskudúkka sem spilar upptöku af andardrætti og hjartslætti móður í slökun. RóRó Fyrirtækið RóRó sem hannar og gefur meðal annars út Lúlla Doll vöruna gaf á dögunum yfir hundrað vörur til barna með einhverfu og eru sum barnanna sem fengu dúkkuna búsett í Úkraínu.
Vildu gefa börnum dúkkuna „Í tilefni af Alþjóðlegum mánuði einhverfu, ákváðum við að gefa til stofnanna og góðgerðarsamtaka í Bandaríkjunum sem sinna einhverfum börnum en Bandaríkin eru einn stærsti markaður Lúllu,“ segir Sunna Ósk Ómarsdóttir sem starfar sem markaðsstjóri RóRó þegar hún ræddi við Vísi. „Við höfum séð í gegnum tíðina að Lúllu dúkkan hefur hjálpað mörgum börnum með einhverfu og aðrar taugaþroskaraskanir að finna ró, öryggi, að sofa betur og að sofna fyrr. Við gáfum til nokkurra félagasamtaka og fengum gríðarlega góð viðbrögð frá börnum og foreldrum sem að fengu dúkkurnar að gjöf,“ segir Sunna um viðbrögð foreldra. Eyrún Eggertsdóttir og Sunna Ósk Ómarsdóttir.Aðsend Lúlla fór til Stanford „Ein af þeim stofnunum sem við gáfum til var barnageðdeildin við Stanford University school of Medicine. Þau héldu utan um söfnun á leikföngum fyrir einhverf börn í Úkraínu í samstarfi við Styrktarsjóð hinna sameinuðu hjarta (e. Foundation of United Hearts). Þau sáu um að koma Lúllu dúkkunum til barnanna og sendu okkur í kjölfarið myndir, kveðjur og fréttir frá foreldrum þeirra barna sem fengu dúkkurnar.“ View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Hafa sent dúkkur til barna í ýmsum löndum „Við gáfum yfir hundrað dúkkur í apríl í tengslum við Alþjóðlegan mánuð einhverfu m.a. til Boston Children’s Hospital, Autism treatment center of Texas, Children’s National Hospital, Marcus Autism Center og Úkraínu. Áður höfum við gefið til barna á Íslandi, þar með talið á leikskóla, í samvinnu við Blár apríl (nú Einstakur apríl) og svo sjá okkar dreifingaraðilar út um allan heim um að koma dúkkum til þeirra sem mest þurfa á því að halda.“ View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Vilja veita öryggi með góðgerðarmálum „Áherslan okkar í góðgerðamálum hefur verið að gefa til barna sem þurfa sérstaklega á stuðning að halda við líðan og svefn. Einnig þeim sem að þurfa að vera lengri tíma frá umönnunaraðilum. Lúllu dúkkan var upphaflega hönnuð til að styðja við fyrirbura og önnur vara frá okkur, Lúllu uglan, er einnig hönnuð sérstaklega til að henta yngstu börnunum sem þurfa að dvelja á spítala. View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Í þeirra tilfelli veitir Lúlla þeim öryggistilfinningu með því að líkja eftir nærveru og á að hjálpa þeim að ná betra jafnvægi í líðan, andardrætti og hjartslætti. Við höfum gefið til fyrirbura, langveikra barna og barna á spítala, fósturbarna, munaðarlausra barna, barna með taugaþroskaraskanir og svo til eldra fólks sem þjáist af heilabilun.“ Líkir eftir nærveru „Í raun hjálpar Lúlla öllum börnum á svipaðan hátt, hvort sem þau eru með sérþarfir eða ekki. Lúlla er mjúk tuskudúkka sem spilar upptöku af andardrætti og hjartslætti móður í slökun í allt að tólf klukkustundir í senn. Með þessu líkir hún eftir nærveru og hentar börnum allt frá fæðingu og upp í skólaaldur. Hugmyndin að virkni og áhrifum dúkkunnar er byggð á fjöldamörgum rannsóknum og ráðgjöf frá sérfræðingum. Það hefur sýnt sig að hún hentar fyrirburum, langveikum börnum og börnum með sérþarfir og taugaþroskaraskanir, sem og öllum þeim sem upplifa skort á nærveru. Mjög takmarkað framboð er á vörum með áþekka virkni og Lúlla en mikil þörf er til staðar fyrir þennan hóp.“ View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Erfiðar aðstæður í Úkraínu „Í Úkraínu eru aðstæðurnar núna auðvitað mjög erfiðar. Lífið getur verið flókið og krefjandi fyrir einstaklinga sem eru á einhverfurófinu. Að búa í heimi þar sem þú þarft að hlusta á loftvarnarflautur tímunum saman og jafnvel sprengingar. Fela þig í sprengjubyrgjum með ókunnugu fólki, að geta ekki haldið sinni venjulegu rútínu þar sem þú hittir kunnuleg andlit. Þetta eru virkilega erfiðar aðstæður fyrir einhverf börn og eitthvað sem við getum ekki ímyndað okkur sjálf að lifa við. View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Þetta eru aðstæðurnar sem foreldrarnir í Úkraínu hafa lýst fyrir okkur og við erum virkilega þakklát þeim að gefa sér tíma til að senda myndir og sögur, bæði af aðstæðunum sem þau búa við og einnig hvernig dúkkan hefur hjálpað þeirra börnum,“ segir Sunna Ósk sem hefur verið að fá viðbrögð frá foreldrum í Úkraínu. Veitti öryggi á meðan loftvarnarflauturnar ómuðu „Eitt foreldri sagði okkur sögu af því að barnið þeirra var á leið til geðlæknis og þurfti að bíða í neðanjarðarlest í þrjá tíma þar til loftvarnarflautur hættu að óma. Barnið tæklaði aðstæðurnar betur en margir fullorðnir og foreldrið sagði okkur að dúkkan hefði þarna komið til bjargar og veitt því öryggi. View this post on Instagram A post shared by Lulla doll - RóRó Ísland (@lulladoll_is) Annað foreldri talaði um að Lúlla hefði hjálpað þeirra barni að sofna sjálft, sem það hafði aldrei gert áður, og nokkur sögðu að börnin þeirra höfðu sofið betur yfir nóttina og dúkkan hefði hjálpað þeim að róa sig fyrir svefninn,“ segir Sunna um öryggið sem hún segir dúkkuna geta veitt.
Heilsa Börn og uppeldi Tengdar fréttir Lúlla dúkka nú viðurkennd sem nauðsynjavara Lúlla dúkka telst núna til nauðsynjavöru sem hjálpar verulega til í sölu og dreifingu nú á tímum heimsfaraldurs. 12. október 2020 07:03 Þessar tíu viðskiptahugmyndir keppa til úrslita í Gullegginu Endurvinnsla á kaffikorg, kartöflubjór og ferðamannasamfélagsvefur eru meðal þeirra 10 hugmynda sem keppa munu til úrslita í frumkvöðlakeppninni Gullegginu. 19. október 2018 12:00 Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Lesbíur selja litríka íbúð Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Fleiri fréttir Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Sjá meira
Lúlla dúkka nú viðurkennd sem nauðsynjavara Lúlla dúkka telst núna til nauðsynjavöru sem hjálpar verulega til í sölu og dreifingu nú á tímum heimsfaraldurs. 12. október 2020 07:03
Þessar tíu viðskiptahugmyndir keppa til úrslita í Gullegginu Endurvinnsla á kaffikorg, kartöflubjór og ferðamannasamfélagsvefur eru meðal þeirra 10 hugmynda sem keppa munu til úrslita í frumkvöðlakeppninni Gullegginu. 19. október 2018 12:00