Anna segir að sér hafi gengið vel í forkeppni á sunnudag, jafnvel þótt hún hafi ekki komist áfram í milliriðil, og það hafi verið mjög gaman að keppa á landsmótinu.
„Já, það var mjög skemmtilegt. Ég var á lánshryssu sem heitir Yldís frá Hafnarfirði,“ segir Anna Sigríður, sem klæddist 32 ára gömlum jakka af pabba sínum. „Þetta er örugglega heppnisjakki,“ samþykkir hún aðspurð.
Hjarta foreldra og aðstandenda fer oft að slá örar þegar unga fólkið hleypir hestum sínum í braut, en það er atriði sem þeim er skylt að sýna. Anna Sigríður var þó hvergi bangin og segir skemmtilegt að fara hratt. „Hryssan mín var aðeins viljug og vildi elta hin hrossin þegar hleypt var á stökk, en mér tókst að snúa henni við og láta hana bíða þangað til röðin kom að okkur.“

„Verð vonandi alltaf í hestum“
Það er jafnan stór stund að koma fram á Landsmóti, en það krefst mikillar æfingar að verða góður í hestíþróttum. Anna Sigríður hefur verið dugleg að ríða út heima í Skarði í Landssveit þar sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni og var aðeins fimm ára þegar hún fór fyrst að fara ein á hestbak. Hún er því orðin býsna flink að stjórna hesti.
„Vonandi verð ég alltaf í hestum,“ segir þessi knái ungi keppnisknapi, hress og kát.
En keppni er eitt og frjáls reið annað og Anna Sigríður segir að jafnvel þótt það hafi verið upplifun að keppa á Landsmóti hlakkar hún mest til að fara á fjall í leitir í haust með ömmubróður sínum, hinum landsþekkta fjallkóngi Kristni Guðnasyni, sem kenndur er við Skarð.
„Ég er orðin það gömul að nú fæ ég að fara með og gista í fjallaskála, reka féð og hjálpa til. Það verður gaman,“ segir Anna Sigríður að lokum og skottast af stað.
Milliriðlar í barna- og unglingaflokkum fóru fram í gær og voru þrjú efstu:
Barnaflokkur
- Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Þytur frá Skáney / Borgfirðingur / 8,83
- Haukur Orri Bergmann Heiðarsson / Hnokki frá Reykhólum / Snæfellingur / 8,77
- Fríða Hildur Steinarsdóttir / Framsókn frá Austurhlíð 2 / Geysir / 8,65
Unglingaflokkur
- Elva Rún Jónsdóttir / Hraunar frá Vorsabæ II / Sprettur / 8,61
- Glódís Líf Gunnarsdóttir / Goði frá Ketilsstöðum / Máni / 8,60
- (jafnt) Lilja Dögg Ágústsdóttir / Klerkur frá Bjarnanesi / Geysir / 8,56
- (jafnt) Svandís Aitken Sævarsdóttir / Fjöður frá Hrísakoti / Sleipnir / 8,56
Beinar útsendingar og dagleg samantekt á Vísi
Landsmót hestamanna stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu dagana 3. til 10. júlí. Streymisveitan Alendis TV tryggði sér útsendingarétt á Landsmóti og sýnir bæði frá keppnisbrautinni og kynbótabrautinni. Vísir er í samstarfi við Alendis, sýnir daglega samantekt og tengist beinni útsendingu frá völdum dagskrárliðum á kvöldin.
Lesendur Vísis og áhorfendur Stöðvar 2 Vísis geta því fengið innsýn í Landsmót hestamanna, en útsendingu frá allri dagskrá má síðan nálgast með áskrift á alendis.is.
Hér fyrir neðan má sjá samantektarmyndbönd frá keppni gærdagsins.