Innlent

Móðir við­mælanda Eddu Falak krefst fimm milljóna í bætur

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Hlaðvarpið Eigin konur heyrir nú undir Heimildina.
Hlaðvarpið Eigin konur heyrir nú undir Heimildina. Vísir/Vilhelm

Móðir konu sem var gestur í hlaðvarpsþættinum Eigin konur krefst þess að stjórnandi þáttarins, Edda Falak, greiði sér fimm milljónir í bætur vegna hljóðbrots sem var spilað í þættinum.

„Þetta dómsál er bara krafa um miskabætur vegna brots á friðhelgi einkalífsins,“ segir Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður móðurinnar, spurð að því hvort aðrar kröfur hafi verið gerðar í málinu. 

Þannig hefur ekki verið farið fram á að þátturinn verði tekinn úr birtingu.

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir luktum dyrum. Auður segist eiga von á niðurstöðu innan sex vikna.

Í umræddum þætti greindi viðmælandi Eddu frá því að hafa verið beitt andlegu ofbeldi af móður sinni. Spilaðar voru hljóðupptökur af samtölum þeirra mæðgna, þar sem mamman sagði meðal annars að það væri „betra fyrir alla ef þú myndir bara deyja“.

„Það er svona verið að velta því upp hvort hún hafi verið gerð persónugreinanleg með því að spila þessa hljóðupptöku. Hún þjónaði kannski engum sérstökum tilgangi fyrir umfjöllunina sem slíka. Umfjöllunin hefði verið alveg sú sama þótt þessar upptökur hefðu ekki verið spilaðar. Þannig það er gengið hart að hennar friðhelgi. Þetta snýst algjörlega um hljóðupptökurnar,“ sagði Auður í samtali við Vísi í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×