Körfubolti

Elvar Már dró vagninn í sigurleik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Elvar Már Friðriksson lék á als oddi í leiknum í dag. 
Elvar Már Friðriksson lék á als oddi í leiknum í dag.  vísir/Bára

Elv­ar Már Friðriks­son, landsliðsmaður í körfubolta, var stigahæstur á vellinum þegar lið hans, PAOK, lagði Mar­oussi að velli í grísku efstu deildinni í dag.

Lokatölur í leiknum urðu 80-75 PAOK í vil en Elvar Már skoraði 22 stig, gaf þar að auki sjö stoðsendingar og hirti fjögur fráköst. 

PAOK tapaði í fyrstu umferð deildarinnar en liðið er í fyrsta til þriðja sæti deild­ar­inn­ar eft­ir tvær umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×