Forest hafði betur gegn Villa Dagur Lárusson skrifar 5. nóvember 2023 16:05 Leikmenn Nottingham Forest fagna. Vísir/getty Fyrir leikinn var Forest í sautjánda sæti deildarinnar með tíu stig á meðan Aston Villa var í fimmta sætinu með 22 stig. Leikmenn Nottingham Forest byrjuðu leikinn af miklum krafti og pressuðu Aston Villa hátt upp á vellinum og það var ljóst strax í upphafi leiks að leikmenn Aston Villa áttu í erfiðleikum með að spila í gegnum pressuna. Aston Villa var einnig að spila mjög hátt uppi með varnarlínu sína og náði Forest oft á tíðum að komast inn fyrir með góðum sendingum. Það gerðist á 5. mínútu leiksins þar sem Anthony Elanga fékk boltann inn fyrir vörn Villa vinstra megin áður en hann gaf boltann út fyrir á Ola Aina sem átti hnitmiðað skot meðfram jörðinni sem endaði í netinu. Staðan orðin 1-0 og þannig var hún í hálfleik. Það var síðan aðeins eitt annað mark sem leit dagsins ljós í leiknum og var það Forest sem skoraði það. Orel Mangala átti skot rétt fyrir utan teig á 47. mínútu sem Emiliano Martinez varði í netið. Staðan orðin 2-0 og það reyndust lokatölur. Eftir leikinn er Villa enn í fimmta sætinu 22 stig á meðan Forest er komið í tólfta sætið með þrettán stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti